Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
SKÝRSLUR UM SKAPTÁRGOSIX.
67
gjánni fyrir norðan Hverfið, þá framgaus og eldur úr
Hverfis-fljótsgljúfrinu, sem fór með fljótri rás líkt sem vatn rennur
fram eptir aurunum fram fyrir sokallaðan Orustuhól og so
beint í suður sem svarar einni mílu vegar fram á sandinn
og nam þar staðar, tók þetta eldhraun af alian mannaveg í
Hverfið eður í austurlandið, nema komist verður fyrir framan
enda á áður nefndu hrauni, ef það kemst ei í sjó, sem enn
er óséð, þar eldurinn er enn í þvi lifandi og alltíð að
smá-bætast á úr fjallinu eldgangurinn, bæði að austan og vestan,
so menn eru hér á Síðunni so gott innitepptir. Frá þeim 9.
Aug. og til þess dags í dag er, sem er sá 22., hafa gengið
sífelldir sunnanstormar með regnum, ásamt öðru hverju
við-varandi skruggum, dynkjum og eldgangi, sem öðru hverju er
að gjósa uppúr afréttargjánum og framhlaupa úr gijúfrunum
á byggðina, so enn er óséð hvað eldur og þau til þessa dags
innitepptu vötn gjöra að verkum á i hönd farandi hausti og
vetri.
Frá Skaptárdal, hvar eldurinn fór fyrst fram í byggðina
úr gljúfrinu og so umkring uppað Búlandi, sem stendur móts
við Skaptárdal að vestanverðu, meinast eldhraunið ummáls
eptir sem næst verður komist, undir 30 mílur, ef ekki
betur, en á þessum vegi í sinni útbreiðingu í byggðinni
hefur það uppbrennt og eyðilagt eptirskrifaðar jarðir,
nefni-lega:
Skaptárdal, Þykkvabæjarkiaustursjörð, með túnum, högum,
skógi, en hús meinast standandi, sú jörð er framvegis
óbyggjandi.
Á, Þykkvabæjarklaustursjörð, með húsum, túnum, engjum
og högum.
Dalbæ, Þykkvabæjarklaustursjörð, með húsum, túnum og
mestöllum högum.
Húnkubakka með túnum og engjum, en hús eru þar um
óbrend, þó aldeilis óviðværilegt.
Hólma, I’ykkvabæjarklaustursjörð, með húsum, túnum, engjum
og högum, fyrir utan á Skarðsmýri.
Botna, Pykkvabæjarklaustursjörð, með húsum, túnum og
högum.
Hólmasel, 3?ykkvabæjarklaustursjörð, með kirkju, húsum, túninu
og öllum högum.
5*
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>