Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
68
SKÝRSLUR OM SK.APTÁ RGOSIN.
Hnausar, Þykkvabæjurklaustursjörð, sem stendur nú rétt við
eldhraunið, er so umflotin af uppstífluðu vatni, að ei
kann byggjast.
Nes í Skaptártúngu með húsum, túnum, engjum og
högum.
Ytri Asar, Þykkvabæjarklaustursjörð, þar eru hús uppihang-
andi, en uppbrend mestöll tún og engjar.
Eystri Asar, prestssetur, þar eru hús og kirkja enn ðbrennd,
en mikið af túnum og allar engjar uppbrenndar.
Svínadalur, sem er ein af þeim sokölluðu Flögujörðum, þar
hefur eldurinn uppbrennt engjar og liggur langs með
túninu hraunið, en so uppstíflað þar vatn að hús eru í
kafi og aldeilis óviðværileg.
Hvammur, Flögujörð, þar eru hús og tún í kafi af uppstífluðu
vatni en þó óbrennd.
Búlandsnes, kirkjujörð. far eru hús fallin af jarðskjálfta og
síðan uppbrennd hús og tún.
Skál á Síðu uppbrennd með kirkju, húsum, túnum, engjum,
undir fjallinu.
Hólmur, Skálarkirkjujörð, þar eru hús öll umflotin af vatni,
en hagar og nokkuð af engjum uppbrennt.
Hollt, Kirkjubæjarklaustursjörð, uppbrennd með húsum, túnum,
engjum og mest öllum högum og skógi.
Fljótar Efri og Syðri, Kirkjubæjarklaustursjarðir, eru báðar
uppbrenndar með húsum, túnum og öllum högum, samt
miklu af engjunum fyrir utan þær, sem lágu fyrir austan
Steinsmýrarfljót.
Syðri Steinsmýri, Kirkjubæjarklaustursjörð, þar liggur
eld-hraunið skammt frá túnunum, sem eru óbrunnin
ásamt húsum og mestallar engjar, en hagar allir
upp-brunnir.
Efri Steinsmýri, Kirkjubæjarklaustursjörð, þar er mikið af
högum brunnið, en annað sosem hús, tún og engjar
óbrenndar, liggur þó eldhraunið þétt við túnið.
Hér fyrir utan eru mörg melapláss og hagar annara
Kirkjubæjarklausturs jarða skemmdir og afbrenndir, item
alt Laxárnes í sjálfs klaustursins landi uppbrennt og
eyðilagt, ásamt allur klaustrinu tilheyrandi skógur í
Branda-landi.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>