Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
SKÝRSLUR DM SKAPTÁRG OSIN.
69
Að þetta allt framanskrifað sé í allan máta sannferðugt,
vitna undirskrifaðir.
Aö Kirkjubœjarklaustri, d. 24. Aiig. 1783.
Jón Steimjrímsson, S. Olavsson,
Past. et Præposit. L. Klaustuvhaldari til Kirkjubæjarklausturs.
3. Fóstnr úr bréfi prófasts síra Jóns Steingrímssonar
dags. Presthakka á Síðu 31. aug. 1783. Viðvikjandi eldgangi og þar
af rísandi tjóni og fordjörfun.1)
Þann 1. Junii byrjaðist hér ný hörmung, sem voru
herfi-legir jarðskjálftar, er gengu alla þá viku, en á sjálfa hvítasunnu
þann 8da ejusdem í heiðríku og bezta veðri féll yfir oss
þykkur sandmokkur að dimmt varð í húsum en sporrækt á
jörðu og 3 daga þar eptir með steypiregnum, annað veifið
með svo mikilli fýlu, sem menn væri við vessasömustu
brenni-steinsnáma, en svo salt og beiskt, að þá droparnir féllu á
hörund, var sem þar á væri dreift heitum saltpækli.
12ta ejusdem kom fram um allt gljúfur, sem heitir
Skaptárgljúfur, svo mikið eldflóð og so á lit sem brædt eyr i
deiglu, sem þá Blanda hjá ykkur er i temmelegum vexti þar
hjá eður undan Bólstaðahlíð. Þetta eldflóð kom úr einu
dýjaverzla dalverpi hér i Síðumanna afrétti rétt fyrir ofan og
norðan mig (o: Prestbakka) ei lengra frá til að mynda, en
Vatnshlíð er frá Húsey í Hölmi fyrir norðan. Þetta eldflóð
fór allteins að og sagt er frá þá Reykjahlíð tókst af við Mývatn,
að eldurinn varð að brunahrauni eptir sem storknaði. Þetta
eldflóð hefir hér aftekið svo mikið land, sem mest var skógi
og víðir og grasi vaxið, að eg tvíla í kringum það verði riðið
á 2 dögum. Hér tókst af sú kirkjusókn og kirkja sem hét
Skál, eitt höfuðból og fólkríkir bæir, en í öðrum stað önnur
kirkja og bær sem Hólmasel hét, og í þeirri sókn 3 stórbæir
að öllu leiti. I þriðja stað tók eldurinn af alla haga og út-
1 Skrifað eptir tveim rotnum blöðum í hdrs. Jóns Sigurðssonar nr.
422-4°. Sama í hdrs. Bókmf. nr. 149-4°, styttra, endar með
»tot-aliter eyðilögð«.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>