Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
75 FRÁSAGNIR UM SKÓLALÍF.
76
daginn kom annar flokkurinn ad austan, en hinn að vestan,
að norðan kom þá enginn, því annar skóli var á Hólum fyrir
Norðurland. Þeir úr Gullbringu- og Kjósarsýslu, þá nokkrir
voru, áttu að slá sér í hóp Vestfirðinga, sem frá 1760 til 1780
voru flestir, áttu að koma tiltekinn dag á fingvelli og fylgjast
að i hellir, sem er á leiðinni upp í Laugardalinn, hvar þeir
svo höfðu náttstað. Þar átti allur flokkurinn að æpa mikið
heróp, sem þeir kölluðu signum. Úr þessum hellir er stutt
dagleið heim í Skálholt. Nú var þaðan riðið að ferjunni yfir
Brúará, þar kom annað signurn — og hið þriðja sinn hjá
Skólavörðu, því þar var líka Skólavarða skamt norður af
bænum. Þeir að austan gáfu fyrsta signum hjá fjórsá við
Nautavað, en það seinasta á svo kölluðum Skálholtshamri við
Hvítá; mest þótti til þess koma, ef hver flokkurinn heyrði til
annars, því þá gátu allir riðið í hlað undir eins. Þessi siður
viðhélst fyrstu árin í Reykjavík. Fyrsta signum var gefið við
Elliðaárnar, annað á Öskjuhlíð og hið þriðja hjá Skólavörðu,
en þessi siður var aflagður 1795.
Þegar búið var að setja skólann, komu þær svo kölluðu
vices, sem i því voru innifaldar, að hinir eldri skólasveinar,
sem hétu antiqui, söfnuðu saman þeim n}gu lærisveinum,
er hétu novi, og vildu kenna þeim að heiðra aldurinn.
For-eldrar, sem sendu syni sína í skóla, fundu því ráðlegt, að
útvega sonum sínum einhvern forsvarsmann meðal hinna
eldri, sem átti að sjá um, að þeim nýkomna yrði eigi misþyrmt,
var gjarnan valinn einhver stór og sterkur meðal þeirra eldri
og hét hann tutor. En þessir tutores reyndust misjafnt. Eg
man til þess, að einn tutor hélt að sönnu svörum uppi fyrir
sinn klient, en lét hann aptur tolla sér, ef hann gat, fyrir
frammistöðuna, auk þess sem foreldrar drengsins fundu sér
skylt að þóknast honum. Faðir minn vildi engan tutor útvega
mér, enda hafði hann engin efni til að umbuna greiðann,
sagði, »vertu óhræddur, ef þú hagar þér siðsamlega, þá þarft
þú enga vernd.« En eg get ekki aptrað mér frá að skjóta hér
inní sögu um einn tutor, sem mér þykir þess verð, að
ein-hversstaðar geymist. Piltur af Austfjörðum, sem eg gæti nefnt,
gisti opt á ferðum sínum í og úr skóla á bóndabæ einum.
Sonur þessa bónda á að fara í skóla, ungur og sprækur vel.
Bóndinn biður gest sinn fyrir drenginn og hann lofar því.
Að þessi tutor hafi varið sinn klient veit eg ekki, en þykir
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>