- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
199

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

192 SKÝRSLUR UM KÖl’LUGOS.

199

hæðir aldrei aftakast, að þar séu undir kleftar eða einhverjar
sérdeilis mishæðir jarðarinnar. Við þeim átta fyrirtaks bæjum,
sem eru í Alftaveri þar fyrir austan, er sagt þetta hlaup hafi
ei hrært. Það er sagt þetta hlaup hafi svo fljótt að komið,
að ein prestsdóttir hafi fundizt við Dyralæki meö hárgreiðuna
í höfðinu með hverri hún var að kemba sér þá hlaupið kom.
Tvær manneskjur skyldu hafa lífs af komizt úr þessu hlaupi:
áður nefndur Sturli; hann kom út, þá hlaupið stefndi á bæ
hans, hljóp inn aftur og greip upp eitt barn í vöggu og bar
það með skyndi út. Tók þá hlaupið bæinn, en hann komst
með barnið upp á einn jaka, sem flaut út á sjó. Þenna
jaka rak austur með landi og dreif upp á Meðallandsfjörur,
hvar hann með barnið komst lífs af. Um vorið eftir þetta
hlaup, fóru menn að kanna þetta pláss, hvort ei fyndust
menn eða annað fémætt, og er þeir gengu þar um, er Lambey
hafði verið, heyrðu þeir gelta hund niðri i sandinum, þeir
rifu þar til og fundu þar lifandi stúlkuskepnu, sem hafði, þá
hlaupið kom, verið send í einn fiskiklefa, en hundur þessi
rann með henni; varð hún þar inni tept. En sá alvísi guð
hagaði því svo til, að hún hafði mitt niðri í svoddan sandi
og sífeldu myrkri nóga lífsnæringu, og hvað meira er að
segja, liún hafði rétt vitað hver vika og mánaðardagur var,
þá hún var þaðan uppdregin, hafði og sagt hún hefði ekkert
óyndi haft. Þessi dæmi sýna, að öllu þvi, er vel hlíft, sem
guð vill hlífa.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0211.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free