- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
202

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

192

SKÝRSLUR UM KÖl’LUGOS. 202

hvar xvj konungs jarðir með einni bændaeign inni liggja,
hverja að sandurinn og öskufallið (að eg meina) með öllu
eytt og umturnað hefur, þvi þar er sandur og aska svo inikill
drifinn, að hann leggjabandi nær á sléttlendi, þar minst um
er. Parnæst alt norða.nvert Meðalland í sama hrepp, en
sunnanvert er það líðanlegra þvi þar kom ei svo mikið
ösku-fallið, mýrarnar og ílöðin drukku það ogsvo betur til sin, en
harðlendið. Item og i sama ináta (en þó ekki svo mjög né
freklega) þá er Kleyfarþing eða Kirkjubæjarklausturs hreppur,
austur með öllu fjalli, ásamt Landbroti fyrir sunnan Skaftá
ogsvo fordjarfað, svo engvir hagar uppi fást eða finnast kunna,
hvorki fyrir sauð né kapal, svo björg megi að verða, ulan
alleinasta lítið þar mj?rlendi er mikið lítil brydding landsins
með sjósíðunni, svo sem er i Meðallandi og hér í Veri,
þessvegna að vindur bægði öskufallinu. frá sjósíðunni og til
fjallanna, hverir tilburðir og fádæmi svo uppbyrjuðust,
yfir-stóðu og enduðust (þó meir og framar) sem eftir fylgir. hér
segja gjörir og Ijóslega skrií’að stendur.

Anno 1625 þann annan dag septembrismánaðar um
morguninn snemma um fyrstu birting, þá fundust og heyrðust
hér í Veri nokkrir jarðskjálftar smáir en ekki stórir, þar
skamt eftir heyrðust dunur og gnýr svo mikill og þungur að
jörðin öll rigaði sér undir mönnum, þvi jökullinn ásamt. eldi
og vatni gjörði þá hið fyrsta (eftir skjálftann) úr stað að
hrærast og upp að springa. En um það bil sem úti voru
mjaltir, þá tók strax vatnsflóðið að koma i þá á, sem fellur
næst við staðinn og staðarins tún, svo hún gekk strax á
bakka upp úr öllu hófi og heim um túnið allvíða, síðan upp
um allar staðarins engjar, miklu lengra og víðara en hin
næstu ij fyrirfarandi hlaup (er menn til muna) nokkurn tíma
gengið höfðu, svo þar tók bæði mitt og annara sætt og ósætt
hey, skemdi þar öllu og spilti, svo eg fyrir minn part misti
sætt hey og ósætt ei minna en uppá ij c hesta og að auki
þriðjung allra engja óslegið.

Strax lítilli stundu eftir er það i ána kom, gekk hið
sama vatnsflóð bæði að sunnan og vestan að þeirri staðarins
hjáleigu, er heitir Hraungerði og þar inn um öll hús að þau
svo full urðu, að raftaendarnir, sem lágu á veggjunum,
vöknuðu og það sem uppi á bitunum lá, varð fult með
jökla-leir, en fólk alt flúði á hæstu hóla þar nálægt, siðan féll það

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0214.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free