Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
192 SKÝRSLUR UM KÖl’LUGOS.
203
heim i kringum allan staöinn með isjakaferð, fossum og
boða-föilum, svo ógn og undur var á aö sjá alt heim að hverju
• hliði, bæði á hlaðgarði og húsagarði og kirkjugarði, hver vér
teptum og í hlóðum alt það vér kunnum með hurðum, grjóti
og torfi. Og sá vatnsstraumur með þykkustu jakaferð varð
svo mikill og djúpur á millum fjóss og bæjar (þvi þar er
lægð og laut mikil á miili), að haffært skip vel fljóta málti,
og svo gekk það rúnt í kringum allan bæinn (hver að í einni
laut eður lægð stendur, en hæð er alt um kring), svo ekki
var þurt né fritt, utan alieina það lítið pláss (eður hreiður),
er bærinn og kirkjan og þau hús, er þar með fylgja, á stóðu.
En þó komst litið af vatninu heim að staðarins bæardyrum í
gegnum eitt lítið garðshlið, er bæarforin .sína rás út um
hafði, hvað strax tept varð svo ekki mein gjörði. Fénaður
allur var haldinn og geymdur heima á hlaði, því honum þar
nærri var ekki annarstaðar fritt að vera. Og skamt þar eftir
svo sem um miðdegi, þá lét guð (fyrir sína náð) sama
vatns-flóð þverra, svo strax um kvöldið varð nærri vatnslaust
kringum staðinn, utan hvað lágir, lautir og gjár fullar eftir
stóðu. En þessu jafnframt strax eftir kom myrkur yfir ait
að norðan með fjallbygðinni með stórum reiðarþrumum,
braki og brestum og eldgangi, svo menn ei annað hugðu en
það að loftin og himnarnir mutidu sundur springa og yfir
oss f’alla, og eigi meinti eg annars (með það fyrsta) en það,
að bæði Hekla og öll fjöll og öræfi austur eftir á bak við
alla Siðu nær tvær þingmannaleiðir að lengd, mundi fyrir
eldi upphlaupið og sprungið vera, og alt í eitt ónáttúrlegt
eldsbál komið vera, og aldrei varð svo langt hljóða, braks
og stórbresta á milli, aö maður mætti þorstadrykk útdrekka.
Og um kvöldið sem ditnma tók og nóttin yfirgekk, þá flaug
eldurinn og bálglossinn úr loptinu ofan á jörðina kringum
fólkið og gripina, svo að sjá sem alt væri stundum í einum
loga og báli. Og fyrst um kvöldið á meðan öskumyrkrið óx
ekki svo mjög að norðan yfir, þá varð undirtíðinni svo mikil
og stór birta, langt eftir dagsetur, að héðan frá Þykkvabæ
sáust. gjörla öll Mýrdalsfjöll með sinni aðgreining, kennileitum
°g sundurskilnaði, hvað þó er að vegalengd vel hálf
þing-löannaleið og lengra, og slíkt bar títt við þegar stórar
elds-glossur og fýrflammar að komu, svo furða og ógn var á að
sjá og til að heyra, og svo gekk það hér til suður um Verið
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>