- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
209

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

192 SKÝRSLUR UM KÖl’LUGOS. 209

stóran skaða gjörði, því það fór þá þann dag svo í minkan
að um kvöldið sást hvorki eldur né reykur.

Þann 14. Septembris var alt i stilli orðið svo vér urðum
þá hvorki varir við hljóð, ösku, eld né reyk, því guð hafði
hann þá af sinni föðurlegri mildi falið, lægt og niðurþaggað,
hvar fyrir að honum sé lof og dýrð og eilífar þakkir fyrir
utan enda. Amen.

Um allan þennan áður sagðan tíma urðu menn oft varir
við undirgang eður jarðskjálfta sérdeilis, og allra mest í Tungu,
svo fólk, börn og kvinnur á náttartima varð svo hrætt nær
þeir að komu, að það hljóp nakið (eður nær því) upp úr
sínum rúmum þar sérhver lá og út úr húsunum, ei annars
meinandi en þau ofan ríða mundu, en nær útkomu, þá var
ei annað fyrir en þreifanlegt myrkur, eldgangur, öskufall,
brak og brestir, dunur og dynkir, svo enginn vissi hvert sig
hafa skyldi, börn og kvinnur með veini og ýlfran, og
all-margir þeir í guðs orði iítt eður ekki um fróðir eður lesnir
voru með hverjum hætti eður skjótum aðburði að sá síðasti
tilkomudagur vors herra Jesú Christi koma mundi, meintu
að dómadagsundur allareiðu yfir sig komin væri etc.

Item þá voru þeir, sem úr Tungu komu í aðra kjálka,
jarðskjálftanum í þá 12 daga svo vanir orðnir, að þeim
fanst æ og æ jörðin undir sér titra og skjálfa, líkavel þó
enginn jarðskjálfti væri, álíka og þeir menn er sjóriðu hafa
nær af sjó í land koma, að þeim finst jörðin undir sér rygga
eins se’m á sjónum skipið gjörir. Item í Mýrdal urðu þessir
jarðskjálftar svo stórir og margir og langsamir, að menn
all-víða flúðu bæina á náttartima og lágu úti á túnum við tjöld
sin um sagðan tíma. IIús gengu þar og allvíða ti), en þó
eigi til meins eður skaða. En hér í Veri var litið um þá
jarðskjálfta, og þótt menn af öðrum bæum þættust oft varir
við þá verða (þó ei stórir væri), þá fann eg hér á staðnum
sjaldan eður lítt til þeirra.

Hér jafnframt sé öllum ljóst og velmerkjandi þá stóru
dásemd, jarðteikn og miskunarverk er guð almáttugur á og
við oss gjörði, veitti og auðsýndi á öllum þessum
áðursögð-um tíma og undranligum fádæmum, að ekki einasta nokkra
manns persónu ungan né gamlan í hinn minsta máta skaða
eða til saka gjörði, hvorki uppá líf né líkama (að
undan-teknu hvað hjartans skelfingu, ótta og hræðslu viðvikið hefur),

14

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0221.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free