- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
230

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

192

SKÝRSLUR UM KÖl’LUGOS. 230

menn segja þetta fyrra hafi gjört, sem kom úr þessum jökli
og þá aftök Höfðabrekku, heldur spýttist þetta úr miðjum
jöklinum.

3. Viðbœtir Sigurðar Stefánssonar sýslumanns um hlaupin
1660 og 1721})

1660, þá jökullinn hljóp, voru tveir menn í Hafursey,
hverjir að sögðu, að jökulvatn hefði gengið fram úr skarði
þvi, sem er á eynni, o: milli Skálarfjailsins og
megineyjar-innar af þeirri ógna stiflu, sem vorðið hafði fyrir austan
hana.

1721 þá voru köntuð tré í Skiphellir fyrir neðan
Höfða-brekkuháls, sem áttu að fara til Höfðabrekkukirkju, þeim
sópaði hlaupið burtu. Nokkur af þeim ráku upp aftur i
Seilu-tjörn, nærri Bessastöðum, kóngsgarði á Alftanesi. Það sá eg
að stórjakar höfðu af þessu hlaupi farið inn í Ölvesár útfail
og rekið alt að Hamarenda, fyrir sunnan Hraun i Ölvesi. Um
hlauptímann stóð vindur af suðri og stundum litið af
land-suðri, dreif þvi ösku og eldmökkinn bak við Eyjatjallajökul
og norðan Fijótshlið og Þrihyrning um Heklufjöll og
þess-vegna mest í óbygðir milli sunnan og norðanlands. Litið
ösku-fall dreif eitt sinn þversum og út á Selvogsheiði; aska hafði
og nokkur komið norðarlega i Borgarfirði og norðanlands
hafði einnig mikið myrkur yfir komið, því það sagði mér
Benedikt forsteinsson lögmaður (er sat á Rauðaskriðu i
fingeyjarsýslu) á alþingi, að hann hefði um hádegi dags
sök-um öskufallsins hlotið að láta tendra ljós inni í húsum. ]?egar
þetta ógnarhlaup skeði, héldu Þykkvabæjarklaustur sýslumaður
Bjarni Nicolásson og Jón ísleifsson. Þessi 2 jökulhlaup,
nefnilega 1660 og 1721, fordjörfuðu svo og eyðilögðu ei
all-einasta öll tún og engjar þeirrar kostagóðu Höfðabrekku,
einsog áður er sagt, með öðru fleira, sem þar greinir, heldur
burtnumdu þau í grunn víst 2 pörtum og því mun meir
hag-beitarlandsins að norðan, austan og framanverðu, sem sjá
og ráða má þaraf, að enn viðvarandi fjörumarkareikningur að
framan segir, að Höfðabrekka eigi gjörvalt Iand fyrir ofan
þau, úr fullu suðri norður til Moldheiðar vestan, sem liggur

l) Hdrs. J. S. 158 fol.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0242.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free