Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
SKÝRSLUR UM KÖTLUGOS.
241
Hafurnes, og þaðan austur í Tungufljót á Geitlandi, belgdi svo
upp Tungufljótið alt að Flöguvaði, svo jökulhrönnin komst
uppá Flöguengi, en framrás vatnsins og jakanna hljóp í
annan stað fram úr Kúðafljóti; sópaðist burt úr
Hrifunes-hólma, sem liggur milli Hólmsár og Baugadeildar, hálft annað
hundrað lamba, sem Tungumenn og ýmsir áttu þar í
hólm-anum. Hefur svo guðs almáttugs vernd staðið sem múrveggur
fyrir þeirri sveit Álftaveri, sem helzt lá fyrir þessu hræðilega
hlaupi, hvar fólk var orðið svo hrætt, uggandi og tvílrátt, að
sumt hafði flúið bæina á hæztu hóla og nánustu hæðir.
Hef-ur svo þetta hlaup yfirgeysað vel 5 danskar mílur á breidd
og hálft svo mikið á lengd til sjós fram, meðal hvers pláss
að var áðurnefnd sveit, Álftaver, með 10 bæjum, sem hljóp
þá sveit alla um kring, en yfirféll engan bæ. Hlaup þetta
hefur svo geysað og undirlagt með sandi og öskufalli tvö
þinglög Leiðvallar og Kleifa, með 2 klaustrum, 3?ykkvabæ og
Kirkjubæ, og þeirra undirliggjandi jarðir.1) Hvað framar
á-hrærir þann elds og vatnsgang, ásamt drífandi sandmökk,
sem með ýmsum litum, svartbláum, gráum, bleikum, hvítum,
lifrauðum oftast sást og upphnyklaðist, svo hátt sem hin hæztu
veðurloftsins ský tóku, hélzt hann mestallan áður sagðan
tima til austur-landsuðurs, sem fyr var sagt, þá dreif hann
yfii’ þessar sveitir, sem eru innan áðurnefndra þinglaga,
Skaft-ártungu, Álftaver, Síðusveit með Landbroti og Meðallandi,
með svörtu myrkri og iðuglegu sanddrifi og samanbræddum
jökli, sem blautri mykju eður blotasnjó, sem fraus og varð
sem kopar um jörðina, tók svo af allan grashaga um
nefnd-ar sveitir, svo þykt, að sandurinn varð á hólum og hæðum
meir en eitt kvarter og á sléttlendi hálf alin, en í lautum
urðu sandfannir sem eftir fjúk og nær slétt upp á garða
sum-staðar við> bæi. Með sandfallinu fylgdi brunavikurgrjót sem
hnefasteinar, sem niður féll og breiddist sem tað, breitt á
túnum, sumt smærra, sumt stærra, sumt glóandi þá niður
kom, sem þó ei brendi neina þurra materíu, hvorki tré, hey
né þurt torf, en félli sá vikur í vatn eður aðrar votar teg-
’) A bætir viö „með Skaftártungujörðum, livarí og inuilykjast 5
prestaköll, nefnil. Kálfafells, Kirkjubæjar kl., Ása, Hólmasels og
tykkvabœjarklausturs með Iiörgslands hospítalsjörðu og
Krist-fjárjörðunni Keldugnúp".
15
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>