- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
254

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

192 SKÝRSLUR UM KÖl’LUGOS. 254

kom enn ný vatnsfylling þeim mun ógurlegri hinum þremur
áðurtöldu, sem vatnsmegnið var meira undir, en jökulhrönn
tekið fyrir alvöru að uppstífla, og sem hve helzt skaut mér
skelk i bringu, að vatnið fyrir þá skuld kynni að kasta sér
til hliðar. Um hádegi fór þessu vatnskasti litilsháttar að fjara,
enda var nú bær minn, þó með nokkurri jarðarrim alt um
kring, orðinn aigjörlega inniluktur. En þar eð ytri hluti
sókn-ar minnar (Alftaver) var enn frí við vatnið, að undanteknu í
því fyrstnefnda vatnskasti, þar hlaupið fleygði sér tii suðurs
og landsuðurs, hvert Mýrdalssandi lika veitir, einkum fyrir
austan fjallið Hafursey, hvar vatnið bersýniiega hafði sitt
að-alútfali — svo hafði eg við hæsta holt fyrir norðan mig
(Ó-menskuholt kallað) veiðislúffu mina á floti, bundna við langt
færi, í von um að fá mér og mínum á henni bjargað upp yfir
flóann, ef ei yrði lengur vært á höfðanum. Skömmu eftir
nón kom ennnú ný vatnsfylling, engu minni en sú næsta á
undan henni, en bráðum fjaraði hún aftur, svo að eg með
konu minni skömmu eftir miðaftan gengum nú til að skoða
jarðveg þann, af hverjum vatnið var fjarað, hnykti mér nú
við, þá eg sá, að mestallar engjar minar voru sokknar niður
í þykkva jökulleiru og að slétt var orðið yfir stóra tjörn, þriggja
álna djúpa, fyrir framan bæinn minn. Já! stórt stöðuvatn
fyrir norðan mig frá 8 til 10 álna djúpt (sem eg á bát hafði
kannað) var uppfylt orðið að sömu leiru. (NB. um frekari
skaða þessa hlaups, einkum á minni mensaljörðu (Mýrum),
mun eg síðar, ef auðnasf, betur tilgreina). ÍPenna dag var
himinn þykkfenginn, endur og eins sól sjáandi, regn og
korn-jeljahríðir skiftust á víxl með nokkrum þrumum, vindblær frá
vestri og landnorðri; fjúkúðungur byrgði þann dag sýn á
jökl-inum, mökkurinn skautaði hátt.

Nóttina til þess 30. Júní hélt vatnið áfram að þverra;
veður var þá spakt, kulur frá landnorðri, glæringar og dynkir
viðvöruðu frá jöklinum til að heyra. Þann 30. Júní fór vatnið
sifelt minkandi, til þess um miðmundabil kom lítt
merkjan-leg vatnsfylling, sem strax rann af aftur, þann dag var veður
heiðskýrt og rokkaði til með vindgust úr ýmsumáttum;
eink-um siðla þessa dags dunaði mjög, ög megnar eldglæringar
sáust frá jöklinum, reykjarmökkurinn, með að sjá miklu
ösku-falli, skautaöi liátt i himin. Þenna sama dag gjörði eg ferð
mina á efsta bæ í sókn minni, hvaðan eg gjörla fékk séð

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0266.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free