Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
296
UM SKATTBÆNDATA L 1311. 332
tilraun Hákonar hálegs til að draga undir sig helming
þing-fararkaupanna.
a) Með því að skattur og þingfararkaup vóru jafnhá gjöld,
10 álnir hvort um sig á hvern gjaldanda, nemur altaf óskert
upphæð þingfararkaupanna jafnmiklu og konungsskattarnir
nema samtals. Þetta var árið 1311: 38120 álnir (317 hundruð
og 80 álnir) á öllu landinu.
b) Upphæð þingfararkostnaðarins fór eftir tölu
nefndar-manna og farareiri hvers eins, sem var misjafn, eftir því
hvort nefndarmaðurinn átti heima fjær eða nær þingstaðnum.
Eftir Járnsiðu (1271) vóru nefndarmenn samtals 140, og þá
hefur þingfararkostnaðurinn verið hæstur, enn Járnsíða greinir
ekki farareiri nefndarmanna. Með Jónsbók (1281) lækkaði
tala nefndarmanna ofan í 84 (sjö tilftir) og hún greinir
ná-kvæmlega farareiri úr hverju þingi. Þessi nefndarmannatala
stóð, þangað til Hákon háleggur lækkaði hana um rjettan
helming, úr 84 ofan í 42 með rjettarbót, dags. 24. júní 1305,
sem er prentuð í Dipl. Isl. II 342.—345. bls.1), enn á
farar-eirinum gerir rjettarbótin enga breiting.
Mjer þikir líklegt, að ímsum muni þikja fróðlegt að sjá
ifirlit ifir alþingiskostnaðinn um þessar mundir, og set jeg því
’) í Fornbrjefasafnsútgáfunni og í handritum er jpessari rjettarbót
um gildi Kristindómsrjettar hins forna og tölu nefndarmanna
ruglað saman við rjettarbótina 23. júní 1305, sem er prentuð
ómenguð aftan við Jónsbókarútg. Olafs Halldórssonar á 289.—292.
bls. Enn dagsetningarmunurinn (í sumum handritum Jónsvöku
aftan = 23. júní, í öðrum Jónsvöku dag = 24. júní) segir til,
að hjer muni vera um tvær rjettarbætur að ræða, útgefnar með
eins dags millibili. — 1 handritunum stendur, að nefndarmenn
úr HúnavatnsJ)ingi skuli vera „vj.", enn jiaö er efiaust ritvilla
firir uj = iij = 3, og hef jeg leii’t mjer að leiðrjetta j)að. Ef
„vj." er látið standa, verður tala nefndarmanna 45 og stendur á
stöku. Enn tilætlun konungs er bersínilega að fækka j>eim um
rjettan helming, úr 84 ofan í 42. Ejöldi nefndarmanna úr hverju
þingi fer bæði lijer og í Jónsbók eftir fjarlægð jiingsins frá
fing-velli, þannig að þeir eru tiltölulega færri úr hinum fjarlægari
hjeröðum, og er það auðvitað gert til að vega upp á móti j)ví,
að þingfararkostnaður hvers einstaks nefndarmans er hærri úr
hinum fjarlægari sveitum. fað nær því engri átt, að
Húnavatns-þing sendi jafnmarga nefndarmenn og Árnesþing. Eftir Jónsbók
sendir Hiinavatnsjiing helmingi færri menn enn Arnesþing og
jafnmarga og t. d. Múlaþing, og mælir það með leiðrjettingunni.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>