- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
356

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

352

296 UM SKATTBÆNDATA L 1311. 356

Alt bendir til, að vel hafi látið í ári um það leiti, sem
Gizur biskup ljet telja þingfararkaupsbændur. Arið 1056 er
getið um hallæri mikið í Viðbæti Skarðsárbókar við
Land-námu, útg. 1843, 323.-324. Þá var manndauði af sulti
og alt jetið, sem tönn festi á, og svo snjóasamt um vorið, að
menn gengu flestir til alþingis. Þetta er eflaust sama
hafl-ærið, sem Snorri Sturluson skírir frá í lleimskringlu, útg.
Finns Jónssonar, Haralds s. harðr. 36. k. (III 129. bls.),1) að
verið hafi á dögum Haralds harðráða. Haraldr reindist
ís-lendingum þá hinn mesti bjargvættur, og segir Snorri, að
»þaðan af nærðist land þetta til árferðar og batnaðar«. í
annálum er þetta hallæri kallað »óöld« eða »óöld í kristní«
til að greina hana frá annari óöid sem varð í heiðni 80
árum áður (976). Árið 1078 er í annálum nefnt »snævetr inn
mikli«, enn annars er ekki getið um nein harðæri eftir 1056
til loka 11. aldarinnar. Virðist þvi mega ganga að því vísu,
að árin 1092—1095 hafi verið meðalár eða i betra lagi. Á
það bendir líka það, að tíundin var í lög tekin, því að varla
mundu menn hafa gengið svo greiðlega undir hana, ef mjög
illa hefði látið 1 ári.

Á 19. öldinni tek jeg til samanburðar árið 1850, sem
eflaust er eitthvert hið allra besta ár aldarinnar. Þá var
hlutfallið milli tölu skattgjaldenda og fólkstölu 1 : 17,1 (sjá
töfluna hjer að framan). Jeg sleppi brotinu og tel, að 17.
hver maður hafi verið þingfararkaupsbóndi það ár, sem
bændatal Gizurar var tekið. Als vóru
þingfararkaupsbænd-urnir 4560. Verður þá fólkstalan um 1095:

77520.

’) Sbr. Fms. VI 266. bls. Flat. 1 343. bls. Fagrsk. 188. k. (útg.
FJ. 263. bls.).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0368.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free