Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
SKÝRSLUR UH MÝVATNSELDA.
387
þar eyddir vera, medal þeirra er prestssetrið Reykjahlíð; í
vötnunum sjálfum, þar sem til forna sagt er að verið hafi 14
og 15 faðma djúp,1) skal nú ei vera dýpra en manni undir
hönd og jafnvel sumstaðar tekið til að ydda á hraunklettum
uppúr vatninu, svo sagt er að ljósast sé, að sú sveit muni
aldeilis eyðileggjast«. Jón Magnússon segir í bréfi dags.
Sól-heimum 13. okt. 1729 að Reykjahlíð sé eyðilögð, en munum
öllum og viði hafi þó orðið bjargað úr bænum, síra Jón
Sæmundsson flýði að Skútustöðum. Þá eyddust og Gröf,
Grímsstaðir og Fagranes. I bréfi frá Magnúsi Einarssyni á
Stóra-Vatnshorni dags. 5. sept. 1729 er dálítið sagt frá
gos-unum og eyðilegging Reykjahliðar og svo bætt við: »Einhvern
tíma um þetta leyti hvarf sonur hans (sira Jóns
Sæmunds-sonar) úr sæng um nótt, er eigi aftur fundinn; þar til horfinn
annar maður nokkrar kýr rekandi, hverigt síðan sést; vel
mögulegt fallið niður um þá brunnu jörð, því eldurinn skal
hér og hvar óvísvegar uppgjósa. Ein brennandi vatnsæð eða
á skal vera uppsprottin i Reykjahlíðarfjalli,2) sem rennurofan
til Mývatna og þau af því sama tilefni vörm eður volg orðin
og úr þeim allur silungur». Seinna í bréfinu: »Nú sem
stend-ur fréttist, maðurinn skal vera lífs aftur kominn, sem kýrnar
rak, segist dottið hafa niður um heila jörð og undir fótum
fundið harðar grundir og eitthvað i myrkri lengi áfram fálmað,
hitti fyrir um síðir marga stalla hverja hann uppgekk og
út-komst með það sama hvar hann niður datt, og hvað lengi
hann dvaldi í því jarðarfylgsni, áður hann uppkomst, er ekki
greint, og ekki er það satt, að nautin hafi með honum niður
hrapað«.s) í bréfi dags. Rauðuskriðu 7. okt. 1729 segir
Bene-dikt Þorsteinsson að gosið sé altaf að versna: «f’að er
mein-ing manna, að gangi þessi eldur yfir Grímsstaðatún, þá sé
öllu Mývatni, Laxárdal og Reykjadal hætt og muni ei stillast
fyr en í sjó lendir. Guð vægi oss fyrir forþéntu st.raffi og
afvendi frá oss slikri yfirhangandi plágu«. jViðlíkan yfirgang,
") Ýkjur.
2) Hér er átt við hraunkvísiina, sem rann úr Leiriinúksgígum
framhjá Reykjahlíðarfjalli niður i Mývatn milli Reykjahliðar og
Grímsstaða.
3) Gott sýnishorn af öfgasögum jieim, sem gengið hafa um eldgosið
i öðrum sveitum.
26*
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>