- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
392

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

392

SKÝRSLUR UM MÝVATNSELDA.

Hitholl til suðvesturs; þetta litla fjall brennur nú ekki so
mikið sem áður. í þeirri fyrri relatione er um þessi
brenni-steinsfjöll framar ritað nefnilega þeirra situs og brunans
operationes.

7° I þessari descriptione og hinni prentaðri í
Kiöben-hafn 1726 er að gætandi þar sem sagt er í þeirri fyrri að
brennisteinsfjöllin séu enn nú að brenna, á að skiljast fyrir
innvortis bruna i jörðinni, hvar með brennisteinsfjöllin soðna
og seiðast í sundur og verða að eldhvitri1) bleikku og
brenni-steini með óaflátanlegum reyk og vondum dampa, því so
lengi sem eldurinn eður sá eldlegi hiti er í jörðinni sézt hvorki
hans bál né glóandi materia, alt um það hefur sá eldlegi hiti
sínar verkanir að seiða og brenna þar til að loftið uppdregur
inn í sig, þá verður bálið sýnilegt, en í þessari síðari á að
meinast ekki alleinasta innvortis, heldur og útvortis sýnilegt
bál og bruni, sem er jarðeldurinn, hvor nú síðan í fyrra
sumar 1727 d. 21. Augusti og alt til þessa tima er ætið meir
og framar að aukast og má guð vita hvar það muni lenda
hvort heldur sá eldur uppkemur í bæum,3) á nótt eða degi
eður þar fyrir utan, so þeir, sem hér eru i nánd, eru í stórri
dauðans hættu, þvi þessi eldur sprettur so snögglega upp, so
sem þá vindbilur ádettur, og umveltir so jörðinni, að björg
og klettar, sem langt eru niður, uppkastast, so eru hér
aust-ur8) frá Reykjahlíð almenningsvegir öldungis af vegna
um-getins brunahrauns og ótal gjáa, land og grashagar brunnir
og foreyddir, so peningur hefur ekki björg, engjar og
slægju-land viða uppþornað, so ekki sprettur gras, en sumstaðar er
vatnsgangur yfir máta mikill, so gras næst ekki og orsaka
þetta jarðskjálftarnir, sem jörðina sumstaðar so uppþemba að
vatnið fellur gjörvalt þaðan, en í annað pláss ofmikið. Sá
hluti Mývatns, sem liggur nær brennisteinsfjöllunum, er nú
allareiðu orðinn so grunnur að ekki er skipgengt víða og
horfir það til stórra nauða eitt með öðru uppá bjargræði
fólksins, sem sinn heyskap brúkar í eyjum þeim, sem liggja
i Mývatni. Að þetta sé so skeð og á sig komið vitnar

eldheitri.
s) bæunum.

s) hér um pláss austur.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0404.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free