Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
105 SKÝRSLUR UM MÝVATNSELDA.
undirskrifaður að Reykjahlið við Mývatn Anno 1728 d.
23. Junii
Jón Sæmundsson.
Sequitur Appendix II(la
Um eldsbrunann við Mývatn A° 1728 18. Decembr.
og Anno 1729 30. Junij etc.
Anno 1728 d. 18. Decembr. uppkom hræðilegt eldsbál og
jarðeldsbruni við Mývatn, austur frá Reykjahlíð, með
hræði-legum undrum og fádæmum, so eldurinn brendi þá ekki
all-einasta upp aftur það mikla hraun, sem brann árið fyrir og
þar í milli, heldur og einnig heila jörð, grjót og sanda og
uppspjó glóandi hrauni, margra faðma háu i loftið, til dæmis
líkt sem ein soðning í eldheitum potti uppkastast og so sem
flýr undan þeim mikla hita, sem að neðan kemur, so hún
lyptir sér upp frá botninum og hleypur í loftið; álika gengur
hér til og hefur gengið í þessum jarðarbruna og so lítur þetta
út fyrir augum manna. Er so daglega þetta brennandi hraun
að sjóða upp úr jörðunni og sig að útbreiða bæði á lengð,
vídd og hæð. Sumstaðar hefur eldurinn stærri aðgjörðir með
miklu og hræðilegu eldsbáli og uppkastar alt um kring sig í
sífelldum iðugleika glóandi björgum og steinum, sem so eru
blautir orðnir, að þeir renna glóandi eins og smeltur kopar.
Af þvilíku uppkasti þess eldlega grjóts, verða stórar borgir
og miklar hæðir (nefnilega þar sem eldurinn tekur sig fyrst
UPP) holar innan, en kringlóttar bæði utan og innan. Innan
i þessum uppsprettupyttum eldsins er ein ógnarlegasta mikil
og grimm inflammatio ignis, með sterkum stormi, so eldsbálið
utsendist langt þaðan í himininn og með sama báli
uppkast-ast óaflátanlega glóandi, blautt grjót (sem áður er sagt), og
Þá það kemur á jörð niður rennur sem vatn og brennur so
síðan hvað af öðru, allt hvað fyrir verður. En þegar það
kólnar, verður það svart brunnið grjót, og fær þá sinn rétta
en með því útaf eldpyttunum sjálfum er æfmlegt rensli
af glóandi grjóti og rennur óaflátanlega áfram, þrengir það
að því undan runna og kólnaða, molar það í sundur
marg-vislega og ýtir því frá sér, bæði á hæð og vídd; þetta gengur
’) Hér hættir lidr. J. 8. nr. 422 — 4° en hdr. 2860 — 4° í Gamle
kgl. Samling heldur áfram.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>