Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
INNGANGUR.
593
færu snemma vors (1034) úr Þrándheimi austur um Kjöl til
Jamtaiands, þá til Helsingjalands og komu fram í Svíþjóð.
Þar fengu þeir sjer skip og fóru um sumarið austur í
Garða-riki og komu um haustið til Aldeigjuborgar,1) en svo nefndu
Norðmenn bæinn Ladoga, sem var sunnan við Ladogavatn,
austarlega. Frá íslandi þurfti eigi lengri tíma til að fara
þetta sjóveg, þótt þaðan væri hjer urn bil helmingi lengri leið
en úr I’rándheimi.
Allar ferðir á iandi fóru menn þá ríðandi eða gangandi,
ríðandi þeir sem hestaráð höfðu, eins og enn tíðkast á
ís-landi, en fótgangandi þeir, sem eigi gátu veitt sjer hesta. A
vetrum óku menn stundum í sleðum, ef hjarn var. Vagnar
"voru að vísu kunnir á Norðurlöndum, en þeir voru lítið
notaðir til ferðalags í Danmörku fyr en á 16. öld,2) hvað
þá í Noregi og Svíþjóð, þar sem öll vegagjörð var miklu
erfiðari. Sumstaðar á Pýskalandi tóku menn jafnvel síðar en
i Danmörku að aka i vögnum, er þeir fóru eitthvað. í
hin-um fornu menningarlöndum suður við Miðjarðarhafið voru
vegir miklu betri en í Mið-Evrópu eða norðar, en þótt
vagn-ar væru notaðir, var þó hvergi hægt að fara hraðar en
hest-arnir gátu farið. Hin hraðasta ferð á landi var bundin við
skjótleika hestsins, þangað til járnbrautir og gufuvagnar voru
fundnir upp.
Islendingar, sem kváðu að eins fimm til átta dægra
sigl-ingu i besta byr til næstu ianda, töldu 17 dagleiðir fyrir
rið-andi menn úr Fljótsdal, sunnarlega í Norður-Múlasýslu, rjetta
þingmannaleið suður um land á Þingvöll.3) Þetta mátti fara
á skemri tíma með því að fara óbygðir suður um
Sprengi-sand, eins og Sámur Bjarnason gerði. En ef eigi var mjög
mikið í veði, fóru menn að jafnaði eigi lengra á dag en
þing-niannadagleið4) eða þingmannaleið, sem hún var síðar nefnd.
Þingmannaleið er talin fimm mílur.
’) Hkr. H, 529. 8) Troels Lund, Dagligt Liv i Norden, 3. Udg.
J> 174 o. ef. 3) Hrafnk. 107. *) Jb. 5.
38
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>