- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
595

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

INNGANGUR.

595

vatnsós. Seinna ljeði Ingimundur Eyvindi sörkvi vin
sín-um og Þórormi í Þórormstungu Stíganda í kaupferð eina til
annara landa.1)

Á landnámsöldinni voru árlegar samgöngur milli Islands
annars vegar og Noregs2) og norrænna bygða vestan hafs hins
vegar. Hjer um bil fimti eða sjötti hver landnámsmaður kom
vestan um haf til íslands. Auk þess að menn sigldu
jafn-aðarlega til íslands til þess að nema þar land og setjast þar
að,3) fóru landnámsmennirnir sjálfir eða synir þeirra utan til
Noregs eða til Vesturhafslanda, þá er einhver nauðsyn krafði
þess. Stundum fóru þeir í kaupferð eða til þess að sækja
nauðsynjavörur; stundum vildu þeir vitja vina og frænda, eða
jarðeigna sinna og fjár í átthögum sínum; stundum fóru þeir
jafnvel til þess að blóta að hofi því, sem ættmenn þeirra
höfðu átt og þeir höfðu að erfðum tekið, en orðið að
yfir-gefa; en stundum var hefnd eða málaferli eða jafnvel
land-stjórnar- og löggjafarmálefni orsökin til þess að þeir fóru
utan; þá bar það og við að ungir menn,
landnámsmanna-synir, fengu svo mikla löngun til þess að sjá sig um á þeim
stöðvum, þar sem feður þeirra höfðu verið, eða til þess að
framast í öðrum löndum, sem þeir höfðu heyrt mikið af sagt,
að engin bönd hjeldu þeim heima.4)

Landnáma og sögurnar geta um nokkur dæmi upp á
Mta. Miðfjarðar-Skeggi, sonur Skinna-Bjarnar, sem fyr
er nefndur, hefur auðsjáanlega erft farmannshug föður síns.
Hann var farmaður á yngri árum, og af því að hann var
garpur mikill, herjaði hann í austurveg; >er hann fór
aust-an« lá hann i Danmörku við Sjáland; sætti hann þá lagi að
ganga á land og brjóta upp haug nokkurn; segir sagan að
Það hafi verið haugur Hrólfs konungs kraka, og Skeggi tæki
Þar úr Sköfnung, sverð konungs, og öxi Hjalta og mikið fje
annað, en að hann næði eigi Laufa af Böðvari bjarka.5)

Loptur Ormsson, landnámsmaður, sem kom af
Gaul-ungur að aldri til íslands, fór utan hið þriðja hvert
sum-ar fyrir hönd Flosa Þorbjarnarsonar, móðurbróður síns, og

l) Ldn. 176-77; Vatn. 27-28, 30. s) tíbr. Eg. 34/108. 8) Um

Þetta sjá Íslendinsa sögu mína I. b., 224 o. ef. 4) Eg. 126-127.

6) Ldn. 169.

38*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0607.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free