Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
INNGANGUR.
599
stórbænda og margra hinna merkari manna aö fara
á yngri árum í kaupferð til annara landa. Það lítur
út fyrir að það hafi verið fremur alment, að efnaðir
menn, sem bjuggu nærri sjó, ættu haffært skip. Einkum
fcefur það verið alment á vesturströnd Noregs og í eyjum
viða á Norðurlöndum og fyrir vestan haf, þar sem norrænir
menn bjuggu. Sökum þess má líka geta nærri, að margir af
þeira mönnum, sem fóru til Islands og settust þar að í
land-námum annara, hafi verið skipseigendur. fað eru því öll
líkindi til að á meðal landnámsmanna og innflytjenda alls og
alls hafi verið um 300 skipseigendur.
En allt þetta er eigi nema áætlun eða »geta« eins og jeg
segi í Islendinga sögu, en svo er um alt, sem sagt hefur
verið um mannfjölda á Islandi, áður en hið fyrsta manntal
var þar tekið. Að eins eru allar áætlanirnar eigi
jafn-líklegar.
Að áætlun þessari má ýmislegt finna. Það getur verið
að hún sje heldur há, og svo ætla sumir. En það getur líka
verið að hún sje of lág, eins og aðrir ætla. Jeg hygg að hún
sje nærri sanni og hófleg mjög. Þó hygg jeg fremur að
áætlunin um mannfjöldann sje beldur of lág en of há. Pað má
vel vera að fólksfjöldinn á Islandi í lok landnámsaldarinnar
hafi verið um eða vfir 30000 manna. En það er auðsætt, að
þær áætlanir eru fjærst sanni, sem eigi gæta neins hófs nje
heldur þess, hvernig ástatt var á Norðurlöndum, þá er Island
bygðist, og setja því mannfjöldann jafnvel mestan á söguöldinni,
og það enda rjett eptir landnám. Pví hærri eða lægri sem
áætlanir þessar verða hjá mönnum, því fjarstæðari og
öfga-meiri eru þær. Þá er menn leiða getum um mannfjöldann
í lok landnámsaldarinnar (um 930) eða búa til um hann
áætl-anir, sem komast allmikið upp fyrir 40000 eða í annan stað
langt niður fyrir 20000, þá fara öfgarnar að ráða.
Þeir, sem ætla að mannfjöldinn hafi verið fjarska mikill
i lok landnámsaldarinnar eða snemma á söguöldinni, hyggja
að fjöldamargir menn hafi verið fluttir til landsins og að skip
landnámsmanna hafi staðið í mannflutningum til Islands á
sumrum. Á þann hátt hafi margfalt fleiri menn flutt til
landsins, en þeir landnámsmenn voru ásamt mönnum sinum
og fjölskyldu, sem nefndir eru i Landnámu. Sumir ætla jafn-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>