Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
600 FERÐIR, SIGL1NGA.R OG SAMGÖNGUR.
vel að flestir þeir menn, sem Landnáma getur um, hafi verið
fluttir þangað.
En við þessa skoðun er margt að athuga. Fyrst og
fremst verður að gæta að því, að hinn eini vegur, sem til
var, eigi að eins fyrir fyrstu landnámsmennina, heldur og fyrir
marga þeirra siðar, var sá, að þeir ættu skip sjálfir, sem þeir
gætu farið á til Islands. En er þangað var komið, urðu þeir að
búa um sig, reisa sjer bæ, rækta upp tún og hirða skepnur
sín-ar og bú, vinna fyrir sjer með landbúnaði eða fiskiveiðum.
Þeir höfðu því venjulega eigi mannatla til þess að láta skip
sín vera stöðugt i siglingum eða standa í fólksflutningum.
Þeir settu þau upp á Iand og það var undir ástæðum og
at-vikum komið, hvort þeir gátu notað þau næsta sumar eða
látið aðra fara með þau. Það er kunnugt að
landnámsmenn-irnir fóru einstaka sinnum utan og að þeir ljeðu líka stöku
sinnum nágrönnum sínum og vinum skip sín í kaupferðir, en
slíkt gerðu þeir eigi árlega, heldur einu sinni eða tvisvar á
æfinni, þá er sækja þurfti húsavið eða er einhver önnur
nauðsyn krafði. Sumir Iandnárnsmenn munu að likindum
hafa selt skip sín, en flestir munu þeir hafa átt þau. þótt
þeir notuðu þau sjaldan, bæði af því að eigi var ávalt auðvelt
að fá kaupanda að þeim og af því að ýmsir þeirra, einkum
hinir stærri landnámsmenn, hafa eigi unað við annað, en að
eiga skip sjálfir til þess að geta notað þau, ef þeir þyrftu á
þeim að halda. Þeir voru þvi vanir og hafa eigi kunnað við
annað, líkt og sumir Islendingar nú á dögum kunna eigi við
annað en að eiga reiðhest, þótt þeir hafi lítinn eða engan
peningaarð af því, og nauðsynleg ferðalög krefjist þess eigi.
Hins vegar hlaut að fara svo um mörg skip landnámsmanna,
að þau gengju úr sjer, án þess að gefa mikið af sjer
ár-lega. En svona fór það þá og siðar um ýmsa búshluti, sem eru
lítið notaðir, en sem margir heldri menn eiga þó, af því að
stundum þarf nauðsynlega á þeim að halda, og af því að
slíkir menn kunna eigi við annað en að vera sjálfbjarga, að
að svo miklu leyti sem hægt er. Annars litu menn alt öðru
visi á fje á þeim tímum en nú. Menn gátu þá eigi komið
miklu af eignum sínum i peninga og fengið árlega leigu af
þeim á auðveldan hátt, eins og nú á tímum. — Sparisjóðir
og bankar voru eigi til. — Fyrir því hnitmiðuðu menn eigi
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>