- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
626

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

626

FERÐIR, SIGL1NGA.R OG SAMGÖNGUR.

eigi farið utan 1024—1025, eins og segir í Laxdælu. Við þann,
sem Þorkell var að sækja, þá er hann druknaði (1026), mun
hann líklega hafa keypt af einhverjum kaupmönnum, sem
komið hafa á Borðeyri.1)

Þórarinn Nefjólfsson, sem fyr er nefndur i
Niðar-ósi (999), var mikill farmaður á rikisárum Ólafs konungs
Haraldssonar og löngum utanlands. Sögusögn ein segir að
hann byggi norður á Tjörnesi (í ÍPingeyjarsýsIu) og væri
sjaldan árbýll. Hans getur i Túnsberg um páskaleytið 1019r
og hefur hann því hlotið að koma til Noregs i siðasta lagi
haustið áður (1018). Af honum segir ekkert undanfarandi ár,
frá þvi að hann er nefndur um aldamótin; en eflaust hefur
hann verið eitthvað i förum fyrir 1018, einkum ef það er
rjett að hann hafi verið orðinn skipstjóri 999. Þórarinn var
vitur maður og orðspakur, og náði þvi meiri hylli hjá
kon-ungi en vænta mátti um ættsmáan mann, er var líka »manna
ljótastur«. Ólafur konungur fjekk hann til þess að flytja
Hrærek konung til Grænlands eða Islands um sumarið og
gerði hann í staðinn að hirðmanni sinum. Þórarinn hafði
eigi komið til Grænlands og náði eigi heldur þangað, en tók
land i Breiðafirði. Nú getur Þórarins eigi fyr en á
útmánuð-um 1024 og var hann þá í hirð Ólafs konungs og frestaði
með viturleik sinum drápi Asbjarnar selsbana. Um sumarið
sendi konungur hann til íslands með erindi sin til höfðingja
landsins. í’órarinn fjekk þá hraðbyri mikið og bar fram
er-indi konungs á alþingi.2) Hann fór aptur utan um sumarið á
fund Ólafs konungs. Eptir þetta getur I’órarins eigi, en í
æfintýri einu, sem er til af honum, segir að hann hafi fallið
með Olafi konungi, en það er óvíst.3)

Þorgeir Hávarsson, annar þeirra fóstbræðra, sem
Fóstbræðra saga er af, var í förum í nokkur ár, eptir að
hann varð að fara af landi brott sökum víga (um 1014). Hann

!) Lax. 57/212-213, 58/217, 68,248- 249, 74/271-276, 76/280- 282,.
sbr. Grett. 62/228—229; Bjarn. 3, 14. 22; Hkr. II, 124/272; Ól. s. s.
125; Fms. IV, 280; 283—284; Elat. II, 239. 2) Sjá ísl. sögu mína II,
566 o. ef. 3) Hkr. H, 85/156-160, 118-119/253-257,
125-126/273-277; Ól. s. s. 74-76, 125-127; Fms. IV, 174—178, 280- 284; Flat II,
89-91, HI, 244, II, 239 - 241; Fms. V, 314—320. í Hemings j>ætti
Aslákssonar er sagt aö fórarimi hafi veriö í Noregi á ríkisárum
Haralds harðráða, en jDátturinn er eigi sannsögulegur.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0638.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free