- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
684

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

684

FERÐIR, SIGL1NGA.R OG SAMGÖNGUR.

á Tindur Hallkelsson og fórður Kolgrímsson frá Ferstiklu
(um 989). Tindur reið þá á Hallkelsstaði i Hvítársíðu, bæ
föður sins, enda mun hann hafa búið þar.1) Má vera að þetta
sje rjett, og að Tindur hafi þá fyrst komið til íslands eptir
orustuna i Hjörungavogi. Hans er síðast getið í
Heiðarvig-um 1014.

Víga-Skúta Askelsson var erlendis, þá er faðir hans
var veginn, og kom út til íslands annað sumar eptir (um
970).2)

Hávarður hinn halti, sem fyr er nefndur, var í
vík-ing hinn fyrra hlut æfi sinnar, segir saga hans; ef það er
rjett, hefur það verið um þetta leyti (um 970—975.3)

Helgi Ásbjarnarson, sonarsonur Hrafnkels Freysgoða,
sem mest er kunnur af viðureign sinni við Droplaugarsyni,
á að hafa farið utan á vngri árum sinum og verið »marga
vetur í hernaði, bæði i Orknevjum og Noregi með frændum
sinum. Helgi var og nokkur sumur í víkingut. Eptir það
fór hann til Islands. Þótt þetta segi í þætti einum, sem er
ævintýri, getur þó sá sögulegi sannleiki falist i þessu, að
Helgi Ásbjarnárson hafi i raun rjettri farið utan, áður en
hann kvongaðist, en ekki er þess getið i sögunum.4)

Einar Helgason skálaglamm, sem einnig var kallaður
Skjald m eyjar-Einar, sonur Helga Óttarssonar og
Nið-bjargar Bjólansdóttur, var löngum erlendis með tignum
mönn-um. Hann var námgjarn og tók að yrkja, er hann var
ung-ur. Hann hefur og að líkindum farið ungur utan. Eitt sinn
er hann kom út úr för, reið hann til alþingis og hitti þar
Egil Skallagrimsson (um 965—970); hefur það verið eptir
einhverja fyrstu utanför Einars. Hann mun opt hafa farið
landa í milli, þótt Iitið sje um það kunnugt. Hann var
hirð-maður Hákonar jarls Sigurðarsonar, og orti urn hann drápu,
er Vellekla heitir. Eitt sinn er Einar kom út og var með
Ósvifi bróður sinum, reið hann vestan til þess að heimsækja
Egil Skallagrimsson; hann gaf Egli skjöld, sem Hákon jarl
hafði gefið honum, og var hin mesta gersemi. Einar mun
hafa farið til Danmerkur og orti þar kvæði um höfðingja
einn, liklega Harald blátönn. Einar barðist með Hákoni jarli

») Harð. 40/115-116; Heið. 88, sbr. Ldn. 66-67. 2) Reyk.
16/84, 17/86. 3) Háv. s. 1/1. ■>) Brandkr. 184.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0696.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free