Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
688
FERÐIR, SIGL1NGA.R OG SAMGÖNGUR.
og átti þá sjö orustur. Hann var einnig hirðmaður Eiríks
jarls og lagði Gunnlaugi ormstungu liðsyröi, er hann kom
þangaö. Nokkru síSar hefur Skúli farið til íslands, og bjó
hann að Borg eptir föður sinn.1)
forkell hákur Þorgeirsson frá Ljósavatni »hafði
verið utan og framið sig í öðrum löndum« (um 1000). Hann
drap spellvirkja austur á Jamtaskógi, segir sagan; siðan fór
hann austur í Svíþjóð og herjaði með Sörkvi karli í
austur-veg, bæði á suðurstrendur Finnlands og austur i Aðalsýslu
(Estland). Þá fór hann aptur til Svíþjóðar og þaðan til Noregs
og siðan út til íslands. Segir sagan að hann hafi unnið
nokkur þrekvirki og haldið þeim mjög á lopti.3)
Skúmur, leysingi Húnröðar Vjefröðarsonar, fór til
Nor-egs og var í Þrándheimi. Hann var fjesæll mjög; fyrir þvi
vógu þeir Föstólfur og Þróttólfur hann og sendu Húnröði
fje hans (um 1000).3)
Sturla Pj óðreksson, fráStaðarhóli i Saurbæ,
ogÞjóð-rekur sonur hans eiga að hafa komið út i Vaðil (um 1002)
eptir þvi sem segir i Hávarðar sögu Isfirðings, en það er
rangt.4)
Húnröður Vjefröðarson segir saga ein að hafi
kom-ið til Svíþjóðar á fund Sigurðar biskups, sem fyr var
hirð-biskup Ólafs Tryggvasonar, og ætlað að sigla í austurveg
(um 1003—1004.5)
Bessi Hallason, sonur Hreðu-Halla, fór tvisvar utan,
og var að minsta kosti í síðara sinnið með Böðvari
Sig-mundarsyni, föðurbróður sinum, er hann kom út (um 1006—
1009).G)
Porsteinn, sonur Víga-Styrs, fór til Noregs til þess
að ná í Gest Þórhallason og hefna föður sins. Hann elti
Gest alla leið út í Miklagarð, segir sagan, en varð að þiggja
grið af Gesti og hverfa aptur til Noregs. Sumarið eptir fór
hann til íslands (um 1009—1012).7)
i) Eg. 87/322; Gunnl. 6/218-221; Hkr. I, 105/442; Prís. 162; Oddr,
Fms. X, 351, 356, 365; Oddr2 49, 54, 56, 61, (65, 69); Fms, H, 310, 320,
III, 6-7; Flat. I, 482, 495. 2) Nj. 119/ 617-618; um Porkel hák sbr.
Ljósvetninga sögu. 3) Vatn. 47/79-80; Ldn. 187. *) Háv. s. 8/21,
sbr. Eyrb. 57/106—107, 62/112-114; Safu I, 365; ísl. sögu mína II,
446, 495 o. ef. 6) Fms. IH, 169-170; Flat. I, 514. 6) V.-Ljót.
3/168, 3/173, 5/176. ’) Heið. 35-41.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>