- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
699

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

SÖGUÖLDIN.

699

gerðu, fóru í öðrum erindum, eða Ijetu að minsta kosti eigi
kaupskap hepta för sína lengi.

Veturvist útlendinga og alt kaupskaparlagið hafði þaö í
för með sjer, að þeir urðu mjög opt riðnir við ýms mál og
atburði á íslandi; einkanlega tóku þeir þátt í ýmsum verkum
með húsbændum sínum. í’eir fóru t. a. m. með þeim á
mannfundi og til vigaferla, eins og aðrir heimamenn þeirra.
Þess vegna er útlendra manna svo opt getið á íslandi í
ís-lenskum sögum, og eru það langoptast Norðmenn. Pað er
því rjett að byrja á þeim.

II. Norskir kaupmenn og: kaupskip.

Norðmenn eru i íslenskum sögum mjög opt nefndir
Austmenn, eins og síðar skal sýnt með dæmum. Þeir
bjuggu í austurált frá íslandi, komu að austan og fóru aptur
i austur; af því tóku þeir nafn þetta. En nafnið er þó miklu
eldra en bygging Islands og það kom með Norðmönnum til
landsins. Um það leyti sem Island fanst virðist svo sem
Norðmenn austanfjalls og sunnan í Noregi hafi stundum
ver-ið nefndir Austmenn í mótsetningu við þá landsmenn, sem
bjuggu vestanfjalls. Austanfjalls í Noregi voru og Svíar
stundum nefndir Austmenn, af þvi að þeir bjuggu í
austur-átt þaðan; er eigi ómögulegt að nafn þetta hafi einstaka
sinnum verið notaö lika á íslandi um menn af Gautlandi
eða úr öðrum bygðum austur af Noregi, en um það er lítið
kunnugt. f>á er Norðmenn færðu út bygð sína vestur á
bóginn, fluttist nafnið með þeim og festist sjerstaklega við
Norðmenn þá, sem bjuggu kyrrir eptir i Noregi, þrátt fyrir
það þótt afstöðunnar vegna liefði eins mátt nota það um
Svía. Fyrir vestan haf, i Orkneyjum og á Trlandi, voru því
Norðmenn nefndir Austmenn, að sínu leyti eins og
Norð-menn á hinn bóginn kölluðu Ira og aðrar þjóðir fyrir vestan
haf Vestmenn. í Færeyjum og á Grænlandi voru
Norð-menn einnig nefndir Austmenn.1)

Skjaldedigtning I, A, 26, B, 23; Hkr. I, 18/124, H, 143/345;
Flat. II, 476, 477; III 448, 453; Historic and municipal Documents of
li’eland ed. by J. T. Gilbert (London 1870), bls. XXX, 149, 480, 40, 488;
K. Maurer, Die JBekehrung I, 50; Joh. Steenstrup, Normannerne I, 51.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0711.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free