- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
700

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

700 FERÐIR, SIGL1NGA.R OG SAMGÖNGUR.

]?á er ísland tók aö byggjast, sáu norrænir siglingamenn
að þar mundi verða nokkur markaður fyrir vörur þær, er
þeir höfðu á boðstólum. Sumir þeirra höfðu spurnir af
land-inu og frjettu hvað landnámsmennina vanhagaði um. ÍPeir
höfðu fáir getað flutt kvikfjenað með sjer eins og þeir þurftu,
og munu þvi sumir ötulir kaupmenn úr Noregi hafa notað
sjer það, til þess að selja þeim búpening. A
landnámsöld-inni er getið um skip eitt, hlaðið kvikfje, sem kom út i
Kol-beinsárósi. l^að mun hafa komið með kvikfje til sölu, en eigi
er nánara af því sagt og eigi heldur hverjir áttu skipið; en
það munu þó hafa verið Norðmenn. Mönnum þessum hvarf
i Brimnesskógum unghryssi eitt. Þeir seldu I’óri dúfunef
landnámsmanni vonina i þvi, og bendir það á að þeir hafi
farið utan aptur, en eigi tekið bólfestu á íslandi. Þórir fann
siðan hryssu þessa og var hún kölluð Fluga sökum þess
hve- skjót hun var. 3?etta var heldur seint á landnámsöld.1)

Töluvert fyr en þetta var, kom Björn höldur
Brynj-ólfsson til Islands (um 900). Hann var frá Aurlandi í Sogni,
farmaður mikill, og stundum i víking en stundum í
kaup-ferðum. Hann nam á braut fóru hlaðhönd og sigldi til
Hjaltlands. Fyrir það varð hann útlægur i Noregi og menn
gerðir austur um haf til að drepa hann. Björn flýði þá til
ís-lands og kom á fund Skallagrims, sem fyr er sagt, og var
með honum þrjá vetur. I>0tt Björn væri kaupmaður á
þess-um árum æfi sinnar, kom hann þó eigi i kaupskaparerindum
til Islands, heldur landflótta; en hann var á sínu eigin skipi.3)

Um 910—915 kom skip í Húnavatnsós, er norrænir menn
áttu og munu þeir hafa verið kaupmenn. Stýrimaðurinn hjet
Hrafn og fór hann i veturvist til Ingimundar Þorsteinssonar.
Segir sagan að »fleiri höfðu þar verið með Ingimundi, að
honum hefði betur við líkað«; orð þessi benda á, að optar
hafi verið vetursetumenn hjá Ingimundi en i þetta sinn, ef
þau má marka um nokkuð annað en það, að þeir Hrafn
áttu eigi lund saman.3)

Fám sumrum síðar kom út skip í Breiðafirði á
Dög-urðarnesi. Stýrimaðurinn hjet Bárður og var frændi Odds
skrauta og fjelagi, segir sagan, þá er þeir höfðu verið í
hern-aði. Sagt er að fimm íslenskir menn væru með honum, og

’) Ldn. 194. 2j Eg. 102-108, 111. 3) Vatn. 17/29; Ldn. 177.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0712.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free