- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
709

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

SÖGUÖLDIN.

709

þess getið, að tveir stýrimenn hafi verið á þeim og um eitt
er sagt að áttu þrír bræður. ]?á er tveir voru stýrimenn,
voru það venjulega bræður eða sameigendur skipsins, menn,
sem höfðu gert fjelag með sjer. í?á er þess er einungis getið,
hver var stýrimaður á skipinu, má optast ætla að hann hafi
einnig verið eigandi þess, nema hann hafi átt föður á lífi,
sem átti það, eða hann hafi farið með skip konungs og
er-indi hans eða annara störhöfðingja. Hið sama má og venjulega
ætla um þau skip, sem að eins er sagt um að norrænir
menn hafi átt.

Um fáeina af kaupmönnum þessum er þess getið að þeir
hafi komið optar en einu sinni til Islands; en það hafa
ef-laust fleiri gert en þeir einir, sem það er sagt um. Margir
þeirra munu þó að eins hafa farið eina ferð tii Islands, en
um þetta vantar öll nánari skýrteini.

Ef það er athugað hvaðan kaupmenn þessir voru úr
Noregi, þá er það eptirtektavert að eigi færri en átta þeirra
eru nefndir vikverskir (eða úr Víkinni), þótt Víkin lægi eigi
sem best við siglingum til íslands og þaðan væru heldur
fáir landnámsmenn ættaðir. Kaupskapur og siglingar hafa
eigi verið þar litlar á þessum tima, og útflutningur manna
hafði verið minni þaðan á dögum Haralds hárfagra en úr
flestum öðrum hjeruðum i Noregi; Vikverjar hafa því getað
haldið uppi siglingum með fullu fjöri á söguöldinni.

Annars er þess sjaldnast getið hvaðan úr Noregi
kaup-mennirnir voru. Fimm eru nefndir þrænskir (eða úr
Þrænda-lögum) og af þeim voru tveir bræður; einn var af Voss, einn
af Hörðalandi og einn úr Sogni eða jafnvel tveir. Eptir
þess-um tölum að dæma mætti jafnvel ætla að flestir þeirra hafi
verið úr Vikinni og úr jprándheimi, en það er þó tæplega
rjett. Ýmsir siglingamenn norðan úr frændalögum og alla
leið suður um Noreg og austur i Vik hafa við og við siglt
til Islands; þótt um fæsta þeirra sje tilgreint að þeir hafi
verið úr vesturfylkjum Noregs, er þó alls eigi vist, að færri
hafi komið þaðan til íslands en úr Vikinni. Það er eigi
ó-mögulegt að flestir þeirra hafi verið þaðan, og að þess sje
eigi getið i sögunum vegna þess, að íslendingar hafi verið
þvi vanir, að flestir þeir Norðmenn, sem til landsins komu,
væru úr Gulaþingslögum. faðan áttu Norðmenn einkum
frændavon á Islandi, og miklar tengdir voru þá milli íslands

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0721.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free