- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
708

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

708

FERÐIR, SIGL1NGA.R OG SAMGÖNGUR.

1014—1015 var Austmaður nokkur 1 veturvist að
Apavatni í Grimsnesi, og var hann líklega einn af
kaupmönn-um þeim, sem Sighvatur Þórðarson fór með utan sumarið
eptir. Austmaður þessi var sagður vitur maður og fróður;
honum var vel til Sighvats.1)

Um 1018 stóð skip uppi í Vaðli og stýrði því norrænn
maður, er Ingólfur hjet. Hann fór utan um sumarið.3)
Hjer um bil fimm árum síðar kom þar út norrænn maður,
er Jökull hjet. Þorgeir Hávarsson kom þá Ut á skipi hans.3)
Um 1020 kom um alþing skip á Eyrum og voru þar á
tveir frændur Þórðar Kolbeinssonar, Óttar og Eyvindur,
vikverskir menn og bræður. 3?eir fóru til vistar með 3?órði
og sátu fyrir Birni Hitdælakappa um haustið. íað varð þeirra
bani.4)

Um 1024 kom skip í Hvítá í Borgarfirði. 3?að átti hálft
Þorleikur Bollason, en hálft norrænir menn. Sagan segir
að Bolli Bollason hafi keypt helming skipsins af
Norðmönn-um, hvað sem hæft er í því.5)

Nú hafa verið nefndir margir Norðmenn, kaupmenn eða
siglingamenn, af eigi færri en 46 skipum, og eru þeir
Gunn-ar stýrimaður, sem nefndur er i Svarfdælu, og Ivar Ijómi þó
eigi taldir með. Um fjögur af skipum þessum er sagt, að
Norðmenn og íslendingar hafi átt þau í fjelagi, og um eitt að
það ættu saman norrænir menn og suðureyskir. Annars er
venjulega nefndur stýrimaðurinn á skipum þessum eða sagt
að það áttu «norrænir menn« eða »Austmenn«. Er það orð
1 Islendinga sögum notað jafnt um Norðmenn norðan úr
Þrændalögum sem úr Víkinni eða öðrum hlutum Noregs.
Eitthvað tvisvar sinnum er að eins sagt, að skip hafi komið
Ut og »voru þar á tveir Norðmenn« (eða «norrænir menn«).
Þeir tóku síðan þátt í þeim atburðum, sem sagan er af;
en af skipunum segir ekki nánar. Þó svona sje að orði
kom-ist, verður helst að ætla að skip þessi haíi verið norræn, en
eðlilega er það eigi vist.

Venjulega var einn stýrimaður á hverju hinna norsku
skipa eins og á hinum islensku; en opt var þó útaf því
brugðið. Um átta af skipum þeim, sem hjer eru nefnd, er

Hkr. n, 43/62; Fms. IV, 89; Flat. III, 243. 2) Fóst. 10/34—
35. 8) Fóst 14/84. *) Bjaru. 18/37—40. 5) Lax. 70/259. 72/265.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0720.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free