Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
766
FERÐIR, SIGL1NGA.R OG SAMGÖNGUR.
í Hvammi, seldi einnig bú sitt af höndum, og rjeóust þau
Ari bæði til skips vestur í Vaðil og fóru þar utan (1186).
Voru kærleikar miklir með þeim. En Ari varð eigi gamall.
Eitt sinn gekk hann til með mönnum að bera langskipsrá.
Þeir vissu að hann var sterkari en aðrir menn og var
for-vitni á að reyna aíl hans; þeir hlupu þvi undan ránni, en
Ari ljet hana eigi falla niður að heldur. Eptir það tók hann
sótt og andaðist 1188. Guðný fór þá aptur til Islands og tók
við búi sinu i Hvammi.1)
Hafliði Snorrason í Vatnsfirði, vitur maður og
vin-sæll og hið besta höfðingjaefni, rjeðst 1190 til skips með
As-mundi kastanraza og ætlaði utan, eflaust til Noregs, en það
skip týndist i hafi og öll skipshöfn, sú er þar var á. Fóru
þar margir íslenskir menn, þeir er mikill skaði var að.2)
VI. íslendingar g-erdir utan og- forða sjer til annara landa.
Eptir vig Grettis Ásmundarsonar og Illuga bróður hans
var Þorbjörn öngull Pórðarson gerður sekur á
al-þingi 1032, og skyldi hann sigla samsumars og koma aldrei
til Islands meðan málsaðilar þeirra bræðra lifðu. Hann rjeðst
þá í skip að Gásum og fór til Noregs, og var þar um
vet-urinn. En er hann varð þess vís, að Grettir átti bróður í
Noregi, þótti honum sjer þar eigi óhætt. Sumarið eptir (1033)
fór hann því þaðan og ljetti eigi fyr ferðinni en hann koni
út í Miklagarð. Þar gekk hann á mála með Væringjum.
Bróðir Grettis, sá er hjer ræðir um, hjet Þorsteinn
dróm-undur. Peir Grettir voru hálfbræður, samfeðra. Sagan segir,
að J?orsteinn hafi eitt sinn sagt við Gretti, á meðan hann var
í Noregi, að hann mundi hefna hans. Þorsteinn var þá um
fimtugt, er Þorbjörn öngull kom til Noregs, en hann mintist
ummæla sinna við bróður sinn, segir sagan; og er hann
spurði, að Þorbjörn var farinn úr landi á Ieið til Miklagarðs,
rjeðst hann til ferðar og veitti honum eplirför, og kom út í
Miklagarð nokkru síðar en Þorbjörri. Þar kom hann sjer í
sveit með Væringjum. Pá var Mikael katalak, segir Grettla,
konungur yfir Miklagarði. Michael IV. sem kallaður var káta-
») Sturl. I, 232—234; Ann. IV. 2) Hs„ Sturl.2 II, 8/285, Bps. I,
651; Sturl. 51, 106, 154; Ann. I, III, IV, V.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>