- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
792

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

792

ferðir, sigl1nga.r og samgöngur.

fór fram 28. apríl 1118, en Gissur andaöist 28. maí þá um
vorið i Skálholti, og Þorlákur biskup tók því þegar við
bisk-upsembættti hans, þá er hann kom til Islands um sumarið.1)

Þorvaldur blönduskáld orti um Sigurð Jórsalafara
og mun því hafa farið til Noregs á hans dögum; eru til tveir
visuhelmingar af þvi kvæði, en annars er ekkert um hann
kunnugt.2)

Þórarinn stuttfeldur kom til Noregs á fund
Sigurð-ar Jórsalafara um 1120 eða rjett eptir það ár. Hann var í
stuttum feldi, sem hann fekk auknefni af, og heldur
fátæk-lega til fara, en skáldskapargáfa hans varð honum að gagni
hjá konungi og tók hann við honum. Þórarinn færði honum
drápu, sem Stuttfeldardrápa er kölluð og enn er nokkuð til
af. forarinn sagði konungi að hann ætlaði suður til Róms
og fekk konungur honum mikið fje til fararinnar, og kvaðst
mundi gjöra honum sæmd, þá er hann kæmi aptur, en eigi
greinir um það, hvort þeir fundust síðan.3)

Einar Skúlason af ætt Mýramanna, niðja Skallagrims,
prestur og eitthvert hið merkasta islenskt skáld á 12. öldinni,
fór ungur utan til Noregs, því að hans getur þar í Niðarósi
hjá Sigurði Jórsalafara 1114 og er Einar þá orðinn einn af
góðkunningjum konungs. Þeir konungur hafaverið á líkum aldri,
en Einar þó nokkrum árum yngri (f. um 1094). Hjer um bil
tíu árum siðar er Einars aptur getið hjá Sigurði Jórsalafara
austur i Konungahellu, og átti hann þá þátt í að hjálpa
manni einutn undan konungi og firra konung sjálfan óhappi
í einu vitleysiskasti, sem hann fekk. Hve lengi Einar var utan,
er ókunnugt, en hann var um hríð með Haraldi gilla.
Lik-lega hefur hann farið heldur opt milli landa, þó eigi sje þess
getið. I skrá Ara fróða yfir kynborna presta á Islandi 1143
er Einar Skúlason talinn, og hefur hann þá verið prestur í
Borgarftrðinum, líklega að Borg; hefur Jón Sigurðsson ætlað
að hann hafi dvalið á íslandi um það leyti í 10 ár (1135—
1145). Síðan var Einar hjá Eysteini konungi Haraldssyni
(f 1157) og Sigurði konungi munn bróður hans (f 1155).
Eysteinn konungur var mikill vinur Einars og gerði hann að

’) íslb. 10/17; Krist., Bps. I, 30; Hungr., Bps. 1,69, 72—73; Sturl.

I, 245-246; Ann. IV. 2) Sk.tal; sbr. Skjaldedigtningen A, 492. I
Msk. 157 eru honum eignaðar tvær vísur eptir Þórarin stuttfeld.
8) Msk. 188—189; Hkr. III, 507-509, 3/268, 6/275; Fms. VII, 152-155.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0804.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free