Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
friðar- og rit-öldin.
795
Og vinfengi við Harald konung gilla, er þar var þá landflótta,
og gaf honum gjafir. Seint um haustið hjelt Magnús til
Nor-egs og var i Sarpsborg um veturinn, þar til Haraldur
kon-ungur kom aptur til Noregs og hafði náð þar ríki. fá fór
hann til hans og var með honum í miklu vfirlæti þangað til
hann fór til íslands um sumarið (1135); gaf konungur honum
þá borðker, er vá átta merkur, og ýmsar aðrar gjafir.
Magn-ús kom út í Eyjafirði um alþingi og reið þegar til þings.
Aður en Magnús var kosinn biskup, hafði hann farið utan
ef til vill optar en einu sinni, en ekkert er nánar um það
kunnugt.1)
Erlendur, Islendingur einn, var með Sigurði
slembi-djákn að vígi Haralds konungs gilla 14. desember 1136; hefur
hann eigi farið siðar frá Islandi en þá um sumarið, en
ann-ars er ekkert um þennan mann kunnugt.2)
Úlfhjeðinn Söxólfsson, norðlenskur maður, var
stafn-búi Sigurðar slembidjákns, er hann kom vestan um haf til
Noregs 1137 og fjell i Konungahellu þá um sumarið. Hve
nær hann kom i lið Sigurðar er ókunnugt.3)
I orustunni við Hólm hinn gráa 12. nóvember 1139
voru nokkrir íslendingar. Með Sigurði slembidjákn og
Magn-úsi blinda börðust þeir Sigurður prestur Bergþórsson,
Más-sonar, og Klemet Arason, Einarssonar, og fjellu báðir. Um þá
er þess beinlínis getið, að þeir voru islenskir. En þegar á eptir
er getið um þrjá aðra menn, sem fjellu eigi, >en«. . . »komust á
skip Jóns köðu« (Morkinskinna). Frásögn þessi bendir
óbein-l’nis á að menn þessir hafi og verið islenskir, þó það sje eigi
sagt berum orðum.4) fessir þrir menn voru þeir Ivar
skraut-hanki eða skrauthanski, sonur Kálfs hins ranga,
Arn-björn ambi og ívar dynta Starason, bróðir Helga
Stara-sonar, sem hefur liklega verið kunnur maður á íslandi, úr
því að hann er nefndur svona. ívar skrauthanki hafði ávalt
fyigt Magnúsi konungi, en Jón kaða Kálfsson, bróðir hans,
átti Ceciliu dóttur Gyrðar Bárðarsonar, lends manns og
fósturföður Sigurðar konungs munns. Þeir voru því báðir í
l) Hungr., Bps. I, 76-77; Msk. 200—201; Hkr. HI, 515-516;
■Pms. VII, 197-198; Ann. I. HI, IV. 2) Msk. 206 (= Fms. VII,
333). 3) Msk 212; Fsk. 349; Hkr. HI, 5/356; Fms. VII, 213.
4) 1 einu handriti er líka sagt um þá »en þrír íslenskir menn liföu
ePtir«, Heimskr, Havniæ 1783. III, 345, sbr. Fms. VH, 223 nm.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>