Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
STUULU ÞÓRÐARSONAR
3
sjálfstæðum sögum, sem sé samdar af mörgum
liöfund-um og á ýmsum tímum. Greinir hann þannig á milli
þeirra:
1. Geirmundar þáttur.
2. Þorgils saga og HafliSa.
3. Ættartölur.
4. Sturlu saga.
5. Prestssaga Guðmundar Arasouar.
6. Guðmundar saga dýra.
7. Hrafns saga Sveinbjarnarsonar.
8. íslendinga saga.
9. Haukdælaþáttur og Gizurar saga og Skagfirðinga.
10. Þórðar saga kakala.
11. Svinfellinga saga.
(12. Þorgils saga skarða, og aftan við hana þáttur
um Sturlu Þórðarson, að likindum eftir sama
höfund.)1)
Ætlar BMÓ, að Sturla eigi Islendinga sögu eina,
og nái hún einungis fram til ársins 1242, en þó telur
liann ekki ósennilegt, að Sturla liafi einnig samið
Þor-gils sögu og Hafliða. En Islendinga saga sé að efni til
beinlínis framliald Sturlu sögu, og muni Sturla þvi liafa
ritað upp sögu afa síns, skeytt ættartölunum framan
við hana og samið íslendinga sögu aftan við, eins og
nokkurs konar framhald af henni.2) En þar sem Sturla
liætti að segja frá, þegar Þórður kakali kemur út og
saga hans hefst, verði það tæplega skýrt á annan hátt
en þann, að Sturlu liafi ekki enzt aldur til þess að ljúka
við sögu sína, og liafi hann ekki verið kominn lengra,
þegar hann féll frá. Þaðan i frá sé farið eingöngu eftir
2 öðrum sögum, Þórðar sögu kakala og Gizurar sögu
og Skagfirðinga, auk Svinfellinga sögu.
•Skoðun BMÓ á íslendinga sögu og siðara hluta
Sturlungu stingur mjög i stúf við það, sem menn liöfðu
1) Þorgils saga skarða og Sturlu þáttur standa einungis í II
(122 B) og hafa ckki átt heima i Sturlungu frá upphafi. — 2) Safn
III, 383—385, 391—393, sbr. B. M. Ólsen: Om den saakaldte
Sturlunga-prolog, bls. 15—17.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>