Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
STUULU ÞÓRÐARSONAR
43
hefur ekki fært þetta i letur; hann var viðstaddur,
þeg-ar Sturla Sighvatsson mælti þetta.
Þá kemur lýsing Gizurar, og er lögð áherzla á
frið-leik lians, mælsku og viturleik. Sú lýsing er vitanlega
rétt, þvi að Narfasynir hafa vel munað Gizur; voru
forfeður lians einnig hin mestu glæsimenni, Gizur
Hallsson, föðurfaðir hans, annálaður mælskumaður.
Næst er sú greinin, sem BMÓ telur skotið inn af
safnanda „. . . en þó har svá opt til, þá er hann var við
deilur höfðingja eða venzlamanna sinna, al liann var
afskiptalitill, ok þótti þá eigi víst, hverjum hann vildi
veita." Þetta er rétt, þvi að greinin er samin upp úr
frá-sögnum Islendinga sögu, alveg eins og lýsingin á ofsa
og yfirgangi Sturlu Sighvatssonar rétt á undan, shr. 81.
kap.: „vissi engi, hvárum hann ætlaði at veita," „vissu
menn óvist hvárum liann mundi veita, þvi at hann lét
vel til hvárratveggju" (91. kap.), og i 104. kap.: „lét til
allra skipuliga."1)
Loks er getið um frændríki hans og vináttu við
bændur: „þá var ok vel með þeim Snorra Sturlusvni."
Þetta er tekið eftir niðurlagi 121. kap.: „Snorri fór af
nesjum suðr til Reykja ok var með Gizuri um föstuna;
var þá allvel með þeim mágum."2)
Af þessu er ljóst, að þessi kafli hefur ekki staðið
frá upphafi i sjálfstæðri sögu. Honum er skotið hér inn,
til þess að glöggva lesandann á mikilvægum
timamót-um. Efnið er tint saman viðsvegar úr íslendinga sögu:
um bústað Gizurar, að hann gerðist skutilsveinn
kon-ungs (84. kap.):í), um ofsa Sturlu, óhreinlyndi Gizurar
og vináttu þeirra Snorra, en sumu bætir safnandi við
frá eigin brjósti: ártalinu, lýsing Gizurar og
almenn-um ummælum uin vinsældir hans.
I frásögninni um Apavatnsför (134. kap.) kveður
B. M. Ólsen dálitinn kafla úr Gizurar sögu. Færir hann
þrennt til: að Gizur sé liér heimildarmaður, að tvisvar
sé sagt frá hinu sama og að umrædd grein standi á
1) Sturl.3 I, 411, 444, 460. — 2) Sturl.3 I, 487. — 3) Sturl.3 I, 422.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>