- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
122

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

(122

UM ÍSLENDINGA SÖGU

anum.1) Hér er og sagt lauslega frá framgöngu Þorgils,
er áður var nánar greint frá. Á þessum orðum liefst þvi
frásögn Sturlungutextans.2)

Eftir þetta er I til samanburðar, en dálkurinn er þó
mjög skaddaður og litt læsilegur. Frá orðunum:
„Þor-gils liafði" o. s. frv. fylgir IIp Sturlungutextanum, eins
og áður segir, en sleppir þó málsgrein, sem ekki verður
nú lesin í I nema að litlu leyti og er þvi óskiljanleg. Á
eftir seinni vísunni úr Þorgilsdrápu er i IIp aftur vikið
að Þorgils sögu, um það er þeim Hrafni sveif frá
Ein-ari og Þórði, en þeir sóttu eftir, svo að Hrafn hrökk
þangað sem Þorvarður var fyrii’ og Austfirðingar. Þessi
grein er beint áframhald af því, er síðast var tekið úr
Þorgils sögu. Þá segir frá framgöngu Eyjólfs
Eyjólfs-sonar og Auðunar Seldæls með Hrafni og að þeir Hrafn
og Þorvarður mættust; lagði hvor í munn öðrum og
særðust báðir, en Þorvarður þó meir. Frá þessu atviki
greinir einnig í I, en þó verður það ekki allt lesið nú;
er sagt, að tvær tennur liafi gengið úr öðrum, og liefur
þar liklega staðið nafn Þorvarðs. Af þvi að frá þessu er
sagt í IIp inni i miðri frásögn úr Þorgils sögu, má ætla,
að textarnir sé liér óliáðir hvor öðrum og að báðar
sög-urnar hafi sagt frá þessu einkennilega atviki, þegar
fyrirmennirnir mættust. Orðalagið er og ekki liið sama.
Þá greinir i IIp nánar frá framgöngu Þorvarðs, Þorgils
og Hrafns, og er það úr Þorgils sögu. En þá kemur grein
um fall Ögmundar prjóns, er’var i liði Þorvarðs, og er
liún tekin upp úr texta Sturlungu; i I er frá þessu sagt
fyr, á undan viðureign Þorvarðs og Hrafns, og virðist
sú röð eðlilegri. Aftur er í IIp vikið i Þorgils sögu, þar
sem segir frá falli Ólafs frá Bustarfelli, en síðan tekið
upp úr Sturlungutextanum, hvernig Þorvarði varð við,
þegar liann fékk áverkann af Hrafni. Þetta er slitið úr
réttu samliengi, þvi að i IIp hefur áður verið sagt frá
framgöngu Þorvarðs eftir áverkann, og lcemur þessi

1) Safn III, 344. — 2) Þ. e. texti sá, sem staðið hefur i I og i
l’rumriti beggja skinnbókanna — texti íslendinga sögu.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0208.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free