Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
(140
UM ÍSLENDINGA SÖGU
og þá í réttu samhengi. Það tekur af tvímæli um, að hin
heimildin var þrotin. Með sömu rökum mætti spyrja,
livers vegna safnandi Sturlungu hafi hætt við lieimild
sina i miðju kafi, hafi þessi merkilega frásögn staðið i
henni, og annað fleira um siðustu æfiár jarls. Þessi ætlun,
að frásögnin um Andréssonu sé hluti af lengri sögu, sem
safnandi Sturlungu hafi ritað eftir og ritari I svo aftur
notað sérstaklega, gerir málið enn flóknara. Þetta hefur
Kálund einnig séð. Hann fellst annars á skoðun BMÓ
um Gizurar sögu, en þennan kafla telur hann þó ekki til
hennar, er i vandræðum með hann, en slær því þó fram,
hvorl liugsanlegt sé, að þessi frásögn, ásamt þeim köflum,
sem ritari I hefur tekið upp eftir Hákonar sögu hér næst
á eftir, sé ekki úr sérstakri útgáfu af þeirri sögu, sem liafi
sagt nánar frá islenzkum efnum en þau handrit, sem nú
erii til.3) Þetta getur þó ekki staðizt þegar af þeirri
á-stæðu, að þær viðbætur, sem frásögnin hér á eftir um
skattjátunina 1262 hefur fram yfir handrit Hákonar
sögu, eru allar teknar úr 327. kap. liér að framan, eins og
áður hefur verið rakið.2) Auk þess er frásögnin um
Andréssonu gerólik Hákonar sögu.
Það er Ijóst, að frásögnin er að mestu höfð eftir
mönnum úr flokki Gizurar, og má beinlinis rekja sumt
til Árna Bjarnasonar af Auðkúlustöðum og Hjálms
Þor-bjarnarsonar. En það gefur enga sérstaka visbendingu.
Heimild brestur til þess að telja Hjálm Þorbjarnarson
sama manninn sem Hjálm af Viðivöllum;3) má vel vera,
að svo sé, en það verður hvorki sannað né ósannað. Þá
er og sýnilegt, að Vestfirðingur einn er hér tíðindamaður,
Ólafur Oddsson: „Ok er Óláfr hafði þetta flutt jarli, þá
þótti honum liann fár við verða ok æmta sér litt. Þeir
töluðu þetta í kirkjugarðinum þar i Görðum. Óláfr varð
skjótt i brott aptr af fundi jarls ok reið aptr til Hrafns,
bróður síns." Og bendir þetta ekki til Skagaf jarðar.
Frásögnin virðist rituð af hlýjum hug i garð
Andrés-sona og liggja jarli á hálsi fyrir aftöku Þórðar: „Þá brá
þegar mörgum inum betrum mönnum i brún, ok þótti þá
1) Aarböger 1901, 280 nmgr. 1, —2) bls. 132—133. — 3) Safn III, 353.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>