- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
66

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

28

UM ÍSLEN’DINGASÖGUR 66

Sighvati Sturlusini i SturL), aðrir mestu öðlingar, sem
ekki vilja vamm sitt vita (Áskell goði i Reykdælu),
aðrir eru samviskulausir bragðarefir (Mörðr). Enn
koma íirir glæsimenni, sem likjast riddurum
miðald-anna (Gunnarr, Kári, Gunnlaugr ormstunga, Ólafr pái,
Kjartan), vikingar (Egill, Þorgeirr i Fóstbræðra sögu),
kappar með nokkrum bændabrag á sjer
(Skarp-heðinn), kappar i útlegð (Grettir, Gisli), ragmenni
(Gisli i Grettlu, Björn að baki Ivára), slægir
alþiðu-menn, sem þikir gaman að leika á liöfðingjana
(Ó-feigr í Bandam. s.), alþiðumenn, sem öfunda
höfðingj-ana og þikir gaman að óförum þeirra (Þorkell á
Hafratindum i Laxdælu, 49. k.) osfrv. osfrv.
Kvenn-skörungar (Guðrún, Bergþóra), trúar eiginkonur
(Auðr), kvennskraltar (Hallgerðr, Freydis i Grænlþ.)
ungar, fagrar stúlkur með hjartað fult af ást til
elskhug-ans, enn oft ósjálfstæðar, svo að þær beigja sig undir
vilja foreldra sinna og láta tilleiðast að eiga menn, sem
þær elska ekki(Helga i Gunnl.), og kemur þar fram
tið-arandinn (ósjálfstæði kvenna), galdrakonur og völur
(Katla i Eyrbyggju, Þorbjörg litilvölva i Eiríks s. rauða,
Oddbjörg framsýna í Glúmu), málskrafsmiklar
grið-konur (griðkonan i Grettlu, sem virðir firir sjer Gretti
sofandi að Reykjum) osfrv. osfrv. Ifir höfuð að tala
má segja, að i persónulísingum sagnanna komi fram
sama tilbreitni eins og i lifinu sjálfu.

Enn fremur er það einkennilegt, að persónurnar,
sem sögurnar lisa, eru livergi nærri alfullkomnar.
Spek-ingarnir eru t. d. sjaldan um leið hreistimenn (Njáll),
og liraustmenni sjaldan spekingar (Gunnarr, Kjartan).
Og oftast verða menn varir við einhverjar veilur i fari
persónanna, sem sina, að þeir eru breiskir menn, og
ná ekki hugsjón alfullkomlegleikans (idealsins).
Jafn-vel Njáll, sem er svo veglindur, lætur sjer ekki firir
brjósti brenna að beita miður vönduðum brögðum;
þegar hann vill útvega Höskuldi, fóstra sinum, goðorð,
leggur liann „þat til mála manna, sem ekki þótti líklegt,
at eyddist sóknir, ok varð af því þræta mikil, er málin

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0340.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free