Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
FÓSTBRÆÐRA SAGA
153
og Fóstbræðra saga hvor annari óháðar? Undir því,
hvernig þessum spurningum er svarað, er að miklu leiti
kominn dómur vor um aldur sógunnar.
I hinni elstu Ólafs sögu hefur geimst brot af sögu
um Þormóð, sem segir frá veru hans við hirð Knúts
rika og firstu samfundum hans og Ólafs helga. Sama
saga finst í heilu liki i helgisögu Ólafs, 57.—58. k., og
ber henni svo vel saman við brotin, það sem þau ná, að
Gustav Storm hefur getað filt i eiður brotanna eftir
helgisögunni. Sama sagan hjer um bil með sömu
orð-um stendur líka i Flat. II, 148.—150. k. Aðalefnið er þetta:
Þormóðr kemur first til Danmerkur. Þar er Knútr riki
konungur firir og gerir orð eftir Þormóði og biður hann
gerast hirðskáld sitt. Þormóðr færist undan, þangað lil
konungur lofar honum mörk gulls i mála. Þormóðr
gengur að þvi, enn hefur þó nokkrar dilgjur um, að
konungur efni ekki altaf það sem hann lofar. Við
liirð-ina kinnist Þormóðr vikingi, Háreki að nafni, og firir
tilmæli Knúts gerist Þormóðr stafnbúi á skipi Háreks, þó
með því skilirði, að hann fái að ráða, livar í liafnir skal
leggja eða í burt halda. Áður enn Þormóðr fer burt
með Háreki, irkir hann visu til konungs og óskar i
henni að fá mörk gulls i mála, sem um samið var.
Kon-ungur gefur honum gullhring, sem stóð % mörk, enn
Þormóðr gerir sig ekki ánægðan með það og minnir
á, að liann hafi heitið sjer mörk gulls. Konungur játar
þvi og gefur honum annan hring, siðan irkir Þormóðr
visu uiii örlæti konungs. Að því búnu fer liann burt
með Háreki. Eitt sinn um sumarið vill svo til, að þeir
Hárekr liggja i höfn, þá kemur þangað dreki Ólafs
konungs helga, og vill Hárekr þoka úr læginu firir
drekanum, enn Þormóðr ræður, að það er eigi gert.
Drekinn brunar að þeim, og lendir þeim saman
stafn-búa konungs og Þormóði, og likur svo, að Þormóðr
veg-ur stafnbúann og stekkur siðan upp á drekann, enr
Hárekr forðar sjer og skipi sinu. Þormóðr gengur aftur
eftir skipinu til liftingar og er tekinn höndum. Firir
milligöngu Finns Árnasonar tekst honum þó að koma
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>