- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
229

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Hallfreðar saga

liefur geimst bæði sem sjerstök saga í AM 132, fol., eða
Möðruvallabók, iiinu fræga söguhandriti, og svo i
sam-bandi við hina löngu Ólafs sögu Tryggvasonar, sem er
gefin út bæði i Fornmanna sögum eftir ímsum
liandrit-um og i Flateijarbók, I. b., eftir Flateijarbók. Efnið i
báðum þessum gerðum sögunnar er i öllu verulegu hið
sama, aðeins er sú gerðin, sem kemur fram sem þáttur
i Ólafssögunni, vanalega nokkuð itarlegri og langorðari
enn sjerstaka sagan (i Möðruvallabók). Guðbrandur
Vig-fússon heldur þvi fram i formálanum firir útgáfu sinni
af sögunni (í Fornsögum, Lpz. 1860), að sjerstaka sagan
sje upphaflegri enn Ólafssögugerðin eða þátturinn, sem sje
ekki annað enn hin upphaflega saga aukin með óþarfa
mærð, og þessa skoðun liafa siðan aðrir tekið eftir
Guð-brandi, t. d. Finnur Jónsson i bókmentasögu sinni. Enn
við nákvæman samanburð á gerðum sögunar munu menn
komast að raun um, að afstaða þeirra er talsvert flóknari
enn Guðbrandur Vigfússon hjelt.

Elf vjer berum saman Hallfreðarþáttinn i Ólafs sögu
Fornmanna sagna og sama þátt í Ólafs sögu
Flateijar-bókar, þá sjest, að þar er talsverður munur á. Til dæmis
að taka segir Fms. miklu stittra frá ástum þeirra
Val-gerðar Óttarsdóttur, sistur Hallfreðar, og Ingólfs hins
fagra Þorsteinsonar heldur enn Flat. T. d. liefur Fms.
ekki eitt orð um knattleikinn, sem varð til þess, að þau
Valgerðr og Ingólfr kintust first, enn frá þvi er sagt
ná-kvæmlega i Flat. (að knötturinn, sem Ingólfr kastaði,
barst til Valgerðar, enn hún tók hann undir skikkju sina
og bað þann sækja, er kastað hafði). Líka er þessi Val-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0503.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free