- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
231

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

HALLFREÐAR SAGA

231

I sambandi við þetta stendur önnur missögn milli Fms.
öðrumegin og Flat. og M hinumegin. Bæði Vatnsdæla og
Hallfreðar saga segja frá því, er Galti, bróðir Hallfreðar,
var veginn, og frá undankomu vegandans. Það er auðsjeð,
að sögurnar eru hjer hvor annari óháðar, þvi að hjer eru
imsar missagnir, t. d. sú, að eftir Vatnsdælu gerist þetta
rjett áður enn þeir Friðrekr biskup og Þorvaldr viðförli
komu hingað að boða trú (981), enn eftir Hallfreðar sögu
næsta vor eftir fall Ólafs Trj’gg\’asonar (1001); líka ber
sögunum ekki saman um nafn vegandans (Hermundr
Vatnsd., Brandr Hallfrs.), og fleira ber á miUi, sem jeg skal
ekki þreita menn á að telja. Enn sagan um undankomu
vegandans, eins og hún er i Flat. og M, er bersínilega
tekin eftir Vatnsdælu. Það er Hildr, móðir vegandans, sem
sldtur honum undan bæði eftir Vatnsdælu og Flat.-M, og
þegar Þorkell krafla leitar eftir honum, vitnar Hildr til
þess, að hún hafi áður skotið Þorkeli undan eftir vig
Glæðis, þegar Þorgils og Þorvaldr sóttu eftir lifi hans.
Þetta efni heirir eingöngu til Vatnsdælu, enn kemur
Hall-freðar sögu als ekki við, og er auðsjeð, að Flat. og M hafa
tekið þetta úr Vatnsdælu. Einnig á þessum stað hafa
Fms. geimt uppliaflegan texta Hallfreðar sögu, þvi að
þar stendur að eins, að vegandanum hafi verið undan
slíotið, enn atvik ekki greind nánar. í Fms. er frásögnin
hjer alveg óháð Vatnsdælu frá uppliafi til enda.

I ritgjörð minni um Gunnlaugs sögu ormstungu hef
jeg sint, að kafli, sem stendur bæði í hinni sjerstöku
Hall-freðar sögu (M) og í Hallfreðar þætti Flat., um viðureign
þeirra Gunnlaugs ormstungu og Hallfreðar, hlitur að vera
tekinn eftir Gunnlaugs sögu, sem segir frá hinu sama svo
að segja með sömu orðum. Þar hef jeg hka bent á, að
þennan kafla vantar alveg i Hallfreðarþáttinn í Fins., og
að hann hefur ekki staðið i Hallfreðar sögu frá upphafi,
lieldur er síðari íauki í Flat. og M. Hjer hefur þá
Fms,-þátturinn lika geimt hinn upphaflega texta sögunnar.

Af því, sem jeg nú lief tekið fram, er það ljóst, að
Fms.-textinn hefur á imsum stöðum betri og eldri texta
enn bæði Flat. og hin sjerstaka saga í M, og að Fms,-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0505.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free