- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
238

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

238

UM ÍSLENDINGASÖGUR

og staðfestust þar. Þetta er nokkurs konar inngangur að
meginsögunni. Þá segir frá uppvexti Hallfreðar, ástum
lians og Kolfinnu Ávaldadóttur og deilum við þá Gris,
Má og Ávalda, sem leiða til þess, að Hallfreðr fer utan og
gengur first á hönd Hákoni jarli. Þá kemur sagan um
kristnitöku Hallfreðar og’ dvöl lians lijá Ólafi
Tryggva-sini. Er þar meistaralega sagt frá þvi, hvernig heiðnin
og hin nija trú lieija einvigi i hrjósti lians, og sagan studd
með hinum einkennilegu visum Hallfreðar, enn fremur
frá hinni einkennilegu sendiferð til liöfuðs Þorleifi spaka
og Gautlandsferð Hallfreðar. Þá fer Hallfreðr i orlofi
kon-ungs heim til íslands, þar rifjar hann aftur upp ástir
sinar til Kolfinnu, lendir út úr því i deilum við Gris mann
hennar, og er að því komið, að þeir gangi á liólm, enn þá
frjettir Hallfreðr fall Ólafs konungs, og það fær honum
svo mikils, að hann beiðist sátta við Gris, og það verður
úr, að þeir sættast. Siðan fer Hallfreðr til Noregs og irkir
erfidrápu um Ólaf konung, kemst siðan á vald Eirilcs
jarls og irkir kvæði 11111 hann. Loks segir frá, að Hallfreðr
fer út til Islands og fær áfall á leiðinni, sem dregur hann
til dauða. Likinu er skotið firir borð og látnir filgja
dir-gripir, sem Ólafr konungur liafði gefið honum. Likið
rekur i Evnni helgu (Iona) í Suðureijum, þar stela sveinar
ábóta gripnum og sökkva líkinu i fen, enn Ólafr
kon-ungur birtist ábóta i draumi og hótar honum hörðu, ef
hann láti ekki grafa likið sómasamlega. Ábóti krefur
sveina sína sagna, og Hallfreðr fær wðulegan gröft.
Sagan endar þannig á jartein Ólafs konungs. Á þessu
stutta ifirliti ifir efni sögunnar sjest, að uppistaðan er
einföld og ljós, laus alla bláþræði og útúrdúra.

Um persónulísingar sögunar er það að segja, að þar
ber langmest á Hallfreði, eins og eðlilegt er, og að lísing
lians er hreinasta snildarverk. Hallfreðr er
tilfinninga-maður, eins og skáldum er titt, og gjörðir lians stjórnast
fremur af geðshræringum hans enn skinsemi. Þetta sínir
hann i ástum sínum til Kolfinnu og ekki síður i
drottin-liollustu sinni við Ólaf Tryggvason dauðan, þegar hann
hættir við hóhngönguna og setur að veði sóma sinn, af

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0512.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free