- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
240

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

240

UM ÍSLENDINGASÖGUR

Eða þegar skáldið i annari vísu telur það hið mesla
mein, að hann stóð fjarri konungi við Svoldr, „þótt oft
sé smátt und einum". Þegar vjer lesum þessa og fleiri
staði i erfidrápunni, furðum vjer oss á þvi, að Hallfreðr
skömmu siðar skildi geta fengið af sjer að irkja lof um
Eirik jarl, fjandmann og hanamann Ólafs. Sagan skirir
þetta svo, að Ólafr konungur liafi hirst Hallfreði í draumi
og ráðið honum frá þvi, sem lionum hjó í lmg, að drepa
jarl, og sagt, að hann skildi heldur irkja drápu um liann.
Enn að þetta muni ekki vera annað en óáreiðanleg
munn-mælasaga, það sjest á tveimur erindum i erfidrápu Ólafs
konungs. Þar segir:

ítrfermöum réð ormi
orðsæll konungr norðan

— snörp varð at þat sverða
snót — Eireki at móti.
Enn húfjöfnum liefnir
hlvrs þeim Gota stýrði

— áðr óx of gram góðan
gunnr — Hákonar sunnan.

Iljer er jafnvirðulega talað um háða Ólaf og Eirik,
og i rauninni gæti þetta erindi eins vel verið úr lofkvæði
um Eirík eins og úr lofkvæði um Ólaf. Á öðrum stað í
drápunni er Eiríki beint hrósað. First talar skáldið um
fall hinna hraustu drengja, sem vörðu Orminn með Ólafi.
Siðan bætir bann við:

Vanr mun Ormr, þó at Ormi
alldýrr konungr (jöfurr?) stýri,
livars skríðr með lið lýða
lengi slikra drengja.

Enginn efi er á, að skáldið á við Eirík, þar sem hann
segir, að „alldýrr" konungr (jöfurr) stiri nú Orminum.
Þessar visur erfidrápunnar benda til, að Hallfreðr hafi
verið i þann veginn að koma sjer i mjúkinn hjá Eiríki
eða þó að minsta kosti ekki viljað stiggja hann, þegar hann
orti erfidrápuna, og bendir til, að það, sem sagan segir um
hatur Hallfreðar til Eiriks og um vitrun Ólafs konungs,
sje óáreiðanleg þjóðsaga. Skáldin voru ekki lengi að snúa
við blaðinu, ef hagsmunir þeirra kröfðust þess. T. d. orti

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0514.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free