Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
BANDAMANNA SAGA
265
fái helming eigna Odds, ef hann verður sekur. Enn það
áttu þeir að fá, hvort sem sektin var dæmd í
fjórðungs-dómi eða fimtardómi.1)
Heusler hefur ritað ágætlega um Bandamanna sögu
frá fagurfræðilegu sjónarmiði i formálanum firir útgáfu
sinni. Sagan er eitt hið mesta snildarverk i sagnabálki
vorum og jafnast að þvi leiti, þó að stutt sje, við þær
sögur, sem best eru sagðar, t. d. Njálu og Egils sögu. Að
efni og meðferð efnis er liún einstæð i sinni röð meðal
Is-lendingasagna, þegar Ölkofra þáttur er fráskilinn, sem er
ekki annað enn eftirliking eftir Bandamanna sögu. Flestar
aðrar sögur eru gagnsírðar af hetjuskaparanda
vikingaald-arinnar. Af því leiðir, að þær befja persónur sögunnar,
einkum sögukappann, upp i nokkurs konar æðri
hugsjóna-heim, „idealisera" þá, lisa þeim sem drenglunduðum,
hug-prúðum og hraustum með afbrigðum. Að þessu og fleiru
leiti eiga flestar sögur skilt við tragediurnargrisku. Áþessu
ber ekkert i Bandamanna sögu. Hún lætur persónurnar
koma til dira eins og þær eru klæddar, hefur skarpt
auga firir breiskleika þeirra og brestum og dregur þær
sundur i nöpru háði. Að þvi leiti líkist Bandamanna saga
kómedium Aristófanesar. Og sjerstaklega verða islensku
liöfðingjarnir hart úti. Það er eins og höfundur hafi viljað
sina hnignun höfðingjavaldsins. Sagan er römm
heims-ádeila (satira) i garð höfðingjanna. Þeir sæta miklu
ill-kvitnislegri meðferð i sögunni enn Demos i „Riddurum"
Aristófanesar. Oddr er eiginlega fremur kaupmaður enn
höfðingi, enda er hann uppskafningur og kann ekki með
sakir að fara, kann ekki að beita hinu nifengna valdi
sinu, þó að kaupskapurinn hafi veitt honum „afl þeirra
hluta, sem gera skal". Allir hinir höfðingjarnir,
Banda-mennirnir svonefndu, eru meira eða minna dregnir niður
i sorpið. Þeir^ standa allir á lágu siðferðisstigi.
Takmarka-laus fjegirnd er það, sem mest ber á í fari þeirra allra
og stjórnar öllum gjörðum þeirra. Það er f jegirndin, sem
1) Grágás Kb. I 86. Sbr. ritg. mina um Kjalarnesþing í Germ. Abh.
zum Geburtst. K. Maurers, 127. bls.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>