- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
287

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

GRETTIS SAGA

287

eiðan ifir siðari hluta 2. k., allan 3. k., og firri hluta 4. k.
Firir framan Grettis sögu stendur i liandritinu fremst
niðurlag Bárðar sögu Snæfellsáss og þar næst Víglundar
saga. Þetta liandrit hafa siðustu útgefendur lagt til
grund-vallar, það sem það nær. Náskilt þessu handriti er AM 556,
4°, lika frá 15. öld, þar er sagan heil, og þar hefur lika
staðið kvæðið Grettisfærsla um viðureign Grettis við
Is-firðinga, enn það er svo máð i handritinu, að litið sem
ekkert hefur orðið lesið af því. Þar eru 3 aðrar sögur enn
Grettis saga (Sigrgarðs saga frækna, Gísla saga
Súrs-sonar og Harðar saga). Eftir þessu handriti hafa
útgef-endur filt eiðuna, sem er i 551,4°. — Þá er 2.
handrita-flokkur, nokkuð frábrugðinn þessum. Til hans telst
skinn-handritið AM 152 fol. frá 15. öld og pappírshandritið 151
fol. með hendi Jóns Gizurarsonar (17. öld). Merkilegt er,
að á einum stað i 152 fol. stendur slcrifað á jaðri
handrits-ins með samtiða hendi: „Þessa sögu hefur skrifað bróðir
Bjarnar Þorleifssonar". Þessi B. Þ. er eflaust Björn riki
Þorleifsson, sem varð hirðstjóri 1457 og var drepinn af
enskum mönnum i Bifi 1467. Hann átti 2 bræður, Einar,
sem varð hirðstjóri um 1440 og dó 1453 (aðrir 1463,
Gottsk. Ann. 1473), og Árna, sem er getið 1431 við
vitnis-burð að Helgafelli.J) Líklega er það Árni, sem hefur skrifað
handritið, heldur enn Einar. í liandritinu eru margar fleiri
sögur enn Grettla, bæði Fornaldarsögur og Biddarasögur
og Þórðar saga hreðu. Þessi handritaflokkur hefur
stund-um betri leshætti enn firsti flokkurinn. Þá er skinnhandrit
frá 15. öld i Uppsölum, nr. 10 fol. i safni De la Gardie’s, þar
vantar niðurlag sögunnar, og 2 eiður eru inni i sögunni.
Loks er AM 150 fol., pappírshandrit með hendi Ásgeirs
Jónssonar, skrifað eftir skinnbók, sem nú er glötuð (vottar
Jón Sigurðsson). Þessi 2 handrit eru að dómi Boers
blend-ingar, blanda saman textum þeirra 2 flokka, sem áður
var getið.

Þegar vjer litum á Grettis sögu í þeirri mind, sem

1) Fornbrs. VI, 47.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0561.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free