Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
316
UM ÍSLENDINGASÖGUR
mælum; á það bendir örnefnið Grettisoddi. Enn atvikin
að bardaganum virðist höfundur hafa skáldað frá eigin
brjósti með Landnámu og Bjarnar sögu Hitdælakappa
firir framan sig. Það sjest á því, að flestir þeir menn,
sem við bardagann eru riðnir af hálfu Miramanna, eru
annaðhvort beint teknir eftir Landnámu og ætt þeirra
rakin eftir henni eða leiddir út úr Landnámu með áliktun
og samanburði við Bjarnar sögu Hitdælakappa. Eftir
Landnámu eru teknir feðgarnir Þórarinn frá Ökrum og
Þrándr, sonur hans,1) sömuleiðis „Finnbogi Þorgeirsson
Þóroddssonar ór Hitardal".2) Aftur á móti er „Þorgils
Ingjaldsson, bróðursonr Þórarins" (á Ökrum) dreginn
með áliktun út úr Landnámu. Landnáma getur þess eins
um Ingjald, að hann hafi verið son Þorgils knappa, bróður
Þórarins, nefnir ekki nein börn hans.3) Enn af þvi að
Ingjaldr var Þorgilsson, áliktar Grettis saga, eins og hún
er vön, að hann liafi átt Þorgils firir son, og lætur þennan
Þorgils taka þátt í bardaganum i Grettisodda. „Steinólfr
Þorleifsson ór Hraundal"4) er tekinn eftir Bjarnar sögu
Hitdælakappa, sem getur um Steinólf í Hraundal,5) enn
ættfærir hann ekki, enn að hann hafi verið Þorleifsson, er
áliktun höfundar dregin út úr Landnámu, sem segir frá
Steinólfi, „er nam Hraundal, föður Þorleifs, er Hraundælir
eru frá komnir". Af þessurn Landnámu-stað áhktar
Grettluhöfundur, að Steinólfr sá, sem Bjarnar saga
Hit-dælakappa getur um, liafi verið Þorleifsson (sbr. Grettis
sögu, k. 61, 3: Þorleifr i Hraundal, faðir Steinólfs, var
mikill maðr firir sér, frá honum eru komnir
Hraundæl-ir). Að þessi Steinólfr hafi barist við Gretti í Grettisodda
og fallið þar firir honum, virðist vera einber skáldskapur
söguliöfundar. Merkilegt er það, að þeir einu menn, sem
1) Sbr. Landnámu, Stb., 67. k„ Hb., 55. k., útg. 1843, 75. bls.
Hjer sjest, að höf. filgir Stb. eða samhljóða hdr., Jjví að Stb. ein lætur
Þórarin búa að Ökrum, enn Hb. og Mb. láta Þóri bróður lians búa
þar. Líka er Þrándr nefndur sonur Þórarins i Stb. einni — hin
hand-ritin segja hann son Þóris á Ökrum, bróður Þórarins. — 2) Sbr.
Land-námu, Stb., 66. k„ Hb„ 54. k„ útg. 1843, bls. 74—5. — 3) Landn., Stl).
67. k„ Hb„ 55. k„ útg. 1843, 75. bls. — 4) Grettis saga, k. 60, 6.
— 5) B. Hitd., 22. k„ Boer 48. bls.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>