- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
317

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

GRETTIS SAGA

317

sagan tilgreinir með nafni, að Grettir hafi drepið i
Grettisodda, eru einmitt þeir tveir, Þorgils og Steinólfr,
sem jeg hef sint, að höfundur hefur tekið, annaðhvort
að öllu eða þó að mestu, frá eigin brjósti. Er það ekki
eins og liann hafi þótst sjerstaklega eiga með að taka
lifið af þeim, sem hann hafði sjálfur skai^að?

Vjer getum nú gert oss nokkurn veginn Ijósa
hug-mind um, hvernig frásögnin um þennan bardaga hefur
orðið til. Höfundur virðist liafa vitað litið annað um hann
enn það, sem munnmælin sögðu, að hann hefði staðið í
Grettisodda. Höfundur spir nú sjálfan sig: hvaða menn
vóru það, sem tóku þátt í bardaganum af Míramanna
liálfu? Og hann svarar sjer sjálfur: Það hafa auðvitað
verið afkomendur þeirra landnámsmanna, sem settust að
i grend við Fagraskógafjall, i Hraundal, Hitardal og
Hnappadal. Hann flettir upp í Landnámu sinni og finnur
þar 3 kapítula hvern á eftir öðrum, sem segja, að Steinólfr
liafi numið Hraundal, Þórhallr Hitardal og Þorgils knappi
Hnappadal. Nú gerist þetta eftir tímatali sögunnar um
1023. Þá vóru þessir landnámsmenn löngu dauðir, og
varla líklegt, að nokkur af sonum þeirra liafi verið á
lífi, nema þá að einhver þeirra hafi orðið fjörgamall.
Höfundur lætur Þórarin á Ökrum, son
landnámsmans-ins Þorgils knappa, vera við bardagann sem áhorfanda,
enn segir um hann, að hann hafi verið „mjök gamall
maðr, svá at hann var ekki í atsókninni". Annars velur
hann lil aðsóknarinnar sonarsini áðurnefndra
landnáms-manna, auðvitað af timatals ástæðum, Þránd sonarson
Þorgils knappa, Finnboga sonarson Þórhadds, Steinólf
sonarson Steinólfs i Hraundal, sem liann tekur úr Bjarnar
sögu Hitdælakappa, enn ættfærir eftir Landnámu, og loks
Þorgils, sem hann sjálfur skapar, sonarson Þorgils knappa.
Aðferðin er mjög lilc þeirri, sem höfundur beitir i
Önund-arþættinum. Auk þess lætur hann Arnór, son Þórðar
Kol-beinssonar (sem síðar var nefndur jarlaskáld), koma i
bardagalokin og lisir illa framgöngu hans. Hann er tekinn
úr Bjarnar sögu Hitdælakappa og var þar að auki að
sjálf-sögðu höfundi kunnur sem skáld. Hann er fulltrúi og

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0591.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free