- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
333

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

GRETTIS SAGA

333

enda líklegt, að jeg hafi þá ekki getað gert mjer glöggva
grein firir tilfinningum minum. Enn nú, þegar jeg les
söguna, sem roskinn maður, blandast mjer ekki hugur um,
að það eru einmitt forlög Illuga, sem gera söguna svo
liugnæma og áhrifamikla.

Samtöl sögunnar eru gerð af mikilli snild, vel sniðin
eftir atvikum og eftir lunderni þeirra, sem tala, eðlileg og
smellin, og sjerstaklega kridduð með kjarnirtum
spak-mælum, sem höfundur hefur altaf á liraðbergi og beitir
með mikilli findni. Þessi fjöldi af spakmælum er
sjer-staklega einkennilegur firir Grettis sögu. Lik stefna kemur
fram um likt leiti i Sólarljóðum og Hugsvinnsmálum.

Mannlísingar sögunnar eru einkennilegar og sjálfum
sjer samkvæmar. Hjer ber auðvitað einkum á Gretti. Hann
er i instu rót sinni göfugmenni og fullur af góðmannlegri
gletni, og það erii þessir eiginleikar, sem afla honum
sam-úðar lijá lesendum sögunnar, og einna Ijósast koma þeir
fram í sögunni um berserkjadrápið. Undir híðinu, sem
hörð karlmanslund hefur slegið um hjarta lians, ber
ein-stöku sinnum á næmum tilfinningum, sem brjótast
ósjálf-rátt gegnum liiðið, t. d. i skilnaðarorðum hans við móður
sina i 69. k. „Grát þú eigi, móðir; þat skal sagt, at þú liafir
sonu átt, enn eigi dætr, ef vér erum með vápnum sóttir,
ok lif heil ok vel." Hann er seinn til reiði eins og flestir
sterkir menn (sagan um áleitni Bjarnar við hann hjá
Þorkatli i Sálfti, þegar Grettir drap björninn), enn
reiðist illa, ef hann reiðist, og ef honum finst gengið á
hlut sinn eða sæmd sina, fillist hann óslökkvandi heiftar
og hefnigirni og svifist þá einskis. Hann er lijálpfús við
bágstadda (berserkjadrápið, Glámssagan, sagan um tröllin
i Bárðardal). Hins vegar neiðir skóggangurinn liann oft
til að sína vegfarendum ifirgang og ójafnað. Kjarkurinn
og hugurinn er óbilandi, nema þegar dimma tekur, þá
sækja Glámsaugun á hann. Likamlegt atgervi hefur hann
á hæsta stigi, enn þrátt firir það eltir ógæfan liann. Hann
er lifandi dæmi þess, að „sitt er hvárt, gæfa eða
görvig-leikr", eins og Jökull, móðurbróðir hans, segir við hann
(k. 34, 6). I gegnum alla lisinguna á Gretti og ifir höfuð í

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0607.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free