- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
335

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

GRETTIS SAGA

335

Austfirðingur. Aftur á móti þekkir hann hverja þúfu í
vestanverðu Húnaþingi, i Miðfirði og Hrútafirði, og
lang-líkast virðist, að hann hafi verið borinn og barnfæddur um
þær slóðir, sem eru meginstöðvar sögunnar. Þó ber þess
að geta, að hann talar lika af talsverðum kunnugleik um
Mirar og Skagafjörð. Með þessum ófullkomnu skilrikjum
er auðvitað ekki til neins að giska á, hver höfundurinn
hafi verið. Að eins skal jeg taka það fram, að í það mund,
sem sagan er skrifuð, á öndverðri 14. öld, bír Gizurr galli
Bjarnarson i vestanverðu Húnavatnsþingi, mikill
höfð-ingi, liirðmaður Hákonar báleggs Noregskonungs. Sú ætt
virðist hafa haft miklar mætur á sögum, því að frá
soriarsini hans Jóni Hákonarsini stafar Flateijarbók og
söguhandritið Vatnshirna.1) Merkilegt er, að Gizurr var
tekinn höndum i Svíþjóð og settur i diflissu þar og síðan
leistur út líkt og segir um Þorstein drómund í
Spesar-þætti. Með þessu vil jeg ekki segja, að líkur sjeu til, að
Gizurr galli sje liöfundur Grettis sögu, enn liitt er ekki
ólíklegt, að sagan sje skrifuð undir handarjaðri hans. Enn
hver sem liefur skrifað Grettis sögu, þá er það vist, að
hana má telja með þeim íslendingasögum, sem samdar
eru af mestri snild.

1) I Þórðar sögu hreðu í Vatnshirnu er rakin ætt þeirra
lang-feðga, og segir þar, að Gizurr væri Ejarnarson, enn móðir Bjarnar
Herdís, sistir „herra Hrafns" Oddssonar Alasonar. Herdis þessi var
gift Svarthöfða Dufgussini (Sturl.), og má ]>ví ætla, að Björn, faðir
Gizurar galla, hafi verið son Svarthöfða, heitinn eftir öðrum hvorum
bræðra hans Birni kægil eða Birni drumb. í ritgerð minni um
Sturl-ungu hef jeg sínt, að Svarthöfði muni vera riðinn við samning
Þórðar sögu kakala. Frá honum virðist sagnafróðleikur kominn inn i
Viðidalstunguættina, enn hann hafði sagnafróðleik sinn úr
Sturlunga-ætt, þvi að amma hans Þuriðr var hálfsistir Snorra Sturlusonar.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0609.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free