- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
337

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

FINNBOGA SAGA RAMMA

337

til nema þetta eina blað, er ervitt að segja, livort þessi
stittri texti er upphaflegri enn texti liinna skinnbókanna
eða útdráttur úr lengri textanum.

Þá eru til inörg handrit frá 17. öld, sem öll eiga kin
sitt að rekja til annarshvors eða beggja meginhandrita
og virðast þvi vera þíðingarlaus. Þar á meðal er eitt
skinnhandrit frá 17. öld, skrifað á dögum Þorláks biskups
Skúlasonar, hitt alt pappírshandrit.

Munurinn á Möðruvallabók og Tómasarbók er
tiltölu-lega litill.

Finnboga saga er ein af þeim sögum, sem allir eru
sammála um að sje skáldsaga, jafnvel þeir, sem halda
fastast fram sannsögulegu gildi íslendinga sagna. Samt er
enginn efi á því, að Finnbogi rammi liefur verið til.
Land-náma rekur ætt hans, og Vatnsdæla hefur langt skeið
um viðureign hans og Ingimundarsona. Ljósvetninga
saga nefnir Þóri son Finnboga ramma, og Haukr
Val-dísarson telur hann meðal íslenskra kappa og irkir um
liann eina visu i íslendingadrápu sinni (14. erindi). Enn
sagan er fjarskalega ikt. Það mætti kalla liana nokkurs
konar reifararóman. Hún lætur t. d. Finnboga snúa höfuð
af þrevetrum graðungi, likt og Þórr gerir við uxa Hymis
i Hvmiskviðu. Hún lætur hann ráðast að grimmum
við-birni og mana hann á móti sjer, enn björninn þorir ekki
að fást við hann, fir en hann kastar frá sjer sverði sinu,
til þess að báðir standi jafnt að vígi, þá rís björninn á
afturfæturna og ræðst á Finnboga, enn Finnbogi hleipur
undir hann, nær á honum hriggspennutölcum, britur
sundur i honum hrigginn og gengur af lionum dauðum!
Og siðan lætur sagan Finnboga þreita sund við
livita-björn Hákonar jarls og drepa björninn á sundinu! Það
er auðsjeð, að þessar sögur eru ekki annað enn skáldskapur
höfundar. I samanburði við þetta eru glímurnar, sem
hann þreitir, first við lieljarmennið Álf aftrkembu og
síðan við blámenn Hákonar jarls, ekki annað en
barna-leikur, enn þær sögur miða þó að hinu sama, sem sje að
þvi að viðfrægja afl og hreisti Finnboga frarn úr öllu

22

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0611.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free