- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
340

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

340

UM ÍSLENDINGASÖGUR

lcga í þættinum um Vatnsdælu og komst að þeirri
niður-stöðu, að höfundur Finnboga sögu liafi haft firir sjer
Vatnsdæla sögu, og missagnir þær, sem eru, sjeu að
minsta kosti sumar liverjar sprottnar af þvi, að liöfundur
Finnboga sögu liafi af ásettu ráði vikið frá sögu
Vatns-dælu, þar sem honum þótti hún bera Ingimundarsonum
of vel eða Finnboga og fjelaga lians Bergi rakka of illa
söguna, og breitt frásögninni sinum söguköppum í vil.

Önnur saga, sem nokkrar hkur eru til, að liöfundur
Finnboga sögu liafi þekt, er Gunnlaugs saga ormstungu.
Báðar sögurnar segja frá þvi, að maður hafi lagt það firir
konu sína að láta bera út barn, sem hún gekk með, og
atvikin að þessu eru mjög lik. í báðum sögunum er
mað-urinn að fara á stað heiman til þings, þegar liann gerir
þessa skipun, og samtalið milli bjónanna, sem lijer að
litur, er grunsamlega Jíkt:

Gunnl.iugs s., 3. k. (Mogk):
Um sumarit bjóst Þorsteinn
til ])ings ok mælti til Jófriðar
húsfreyju, áðr hann fór heiman:
„Svá er háttat," segir hann, „at
])ú ert með barni, ok skal þat
barn út bera, ef ])ú fæðir
mey-barn, enn upp fæða, ef sveinn
er." ... ]>á svarar Jófríðr: „Þetta
er óþínsliga mælt," segir hon,
„slikr maðr sem ])ú ert, ok mun
])ér eigi sýnast þetta at láta gera,
svá auðigr maðr sem þú ert."
Þorsteinn svarar: „Veizt þú
skap-lyndi mitt," segir hann, „at eigi
man lilýðisamt verða, ef af er
brugðit." . .. Enn Jófriðr fæddi
mej’barn ákafa fagrt.

Finnboga saga, 2. k.:
Ok eitthvert sinn reið
Ás-björn til þings með menn sína.
Þá mælti hann til Þorgerðar:
„Nú ætla ek til þings at ríða
eftir vanda, enn ek veit, at þú
ert með barni ok mjök framat.
Nú hvárt sem þat er (sveinn eðr
mær 1). v. B), þá skal eigi upp
ala, lieldr skal bera út þetta
barn." Hon sagði, at hann mundi
þat eigi gera, „svá vitr ok rikr
sem þú ert, því at þetta væri hit
óheyriligasta bragð, þó at fátækr
maðr gerði, — enn nú allra helzt,
er yðr slcortir ekki góz." Ásbjörn
segir: „... ef þú gerir eigi eftir
þvi sem ek segi, muntu missmiði
á sjá." ... Litlu síðar fæðir
Þor-gerðr sveinbarn. Þat var mikit ok
þrifligt og fagrt mjök. . . .

Öll frásögnin er lijer svo keimlik, sum orð svo að
segja alveg eins, að liklegt er, að önnur sagan liafi liaft
liina firir sjer. Nú getur enginn efi verið á, að Gunnlaugs
saga er eldri enn Finnboga saga. Auk þess er frásögnin
miklu belur rökstudd i Gunnlaugs sögu með draumi Þor-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0614.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free