- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Sjötta Bindi /
341

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

FINNBOGA SAGA RAMMA

341

steins um þá ógæfu, sem ifir barninu vofi, heldur enn i
Finnboga sögu, þar sem Ásbjörn skipar konu sinni þetta
i reiði ifir því, að hún hefur áður ráðstafað dóttur þeirra
að honum fornspurðum. Það virðist því ljóst, að
höf-undur Finnboga sögu hefur tekið þetta alvik (motiv)
eftir Gunnlaugs sögu og vikið aðeins orðalaginu dálitið
við samkvæmt því, sem á stóð hjá honum, og lagað
frá-sögnina eftir kröfum Finnboga sögu. — Annað atriði er
það, sem virðist benda til þess, að höfundur liafi þekt
Gunnlaugs sögu. Það er þar sem Finnbogi hittir first Álf
aftrkembu i 12. kap. Þar spir Álfr Finnboga að aldri, og
segist hann vera 17 vetra. Alfr svarar: „Vertu eigi
ann-arra 17 vetra jafnmikill ok sterkr sem þú ert." Finnbogi
segir: „Þat er sem verðr, enda muntu dauðr áðr." Þetta
virðist vera sniðið eftir sögn Gunnlaugs sögu um firstu
fundi Gunnlaugs og Eiriks jarls i 8. k. (Mogk). Jarlinn
spir Gunnlaug, hve gamall hann sje. Gunnlaugr segist
vera 18 vetra. „Þat læt ek um mælt," segir jarl, „at þú
verðir eigi annarra átján". Gunnlaugr segir, að jarlinn ætti
heldur að biðja fyrir sjálfum sjer, að hann fái ekki slíkan
dauðdaga sem Hákon jarl, faðir hans. — Finnboga saga
segir lika mjög líkt og Gunnlaugs saga frá
kristnitök-unni. Sbr. Finnboga saga, 36. k.: „Svá er sagt, þá er
kristni var boðuð á íslandi — sá fagnaðr, er öllum hefir
mestr orðit —, at" o. s. frv. við Gunnlaugs sögu, 7. k.
(Mogk): „Ok þessu næst urðu þau tíðindi, er bezt hafa
orðit liér á íslandi, at landit alt varð kristit."

Sumt i sögunni minnir nokkuð á Grettis sögu, t. d.
minna aflraunir Finnboga við að hefja steina i 36. k. á
Grettistökin, og sagan um viðureign lians við björninn i
11. k. er nokkuð svipuð sögunni um það, er Grettir vann
björninn, að þvi undanteknu, að Finnboga saga ikir sina
sögu fram úr öllu hófi. Þó er þetta ekki nógu svipað til
þess, að af þvi megi ráða með fullri vissu, að ein sagan
sje annari háð.

Nokkrar líkur eru og til, að liöfundur liafi þekt
Hallfreðar sögu. í 13. kap. segir sagan frá þvi, að þeir
Álfr aftrkemba og Finnbogi tóku sjer náttból í helli

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:05:49 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/6/0615.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free