Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
348
UM ÍSLENDINGASÖGUR
skeggstóttir eftir Þorvaldi moðskegg (= Garðsliorn í
sögunni) og rjett þar hjá Sveinaklettar, sem Moðskegg
á að hafa rotað sveina Finnboga á. Enn fremur er þar
sint Ragnhildarleiði, konu Finnboga i túninu. Elcki er
ólíklegt, að þessar örnefnasagnir liafi mindast eftir
sög-unni, þó að sagan þekki ekkert af þessum örnefnum og
láti Moðskegg rota sveinana, ekki á neinum tilteknum
klettum, heldur á „steininum" (svo Möðruvallabók, —=
hestasteininum?) eða á „brústeinunum" (= stjettinni
firir framan bæinn, svo Tómasarbók). Enn sje svo, þá
ber þetta vott um, að sagan hefur verið mikið lesin i
"Víðidal og sjerstakléga á Borg’, og bendir til þess eitt
með öðru, að hjer sje hið upphaflega heimkinni
sög-unnar.
I sögunni er ekkert, sem sinir, að hún sje rituð af
klerki. Þvert á móti er einhver bóndakeimur bæði að
orð-færi og frásögn. Um þær mundir, sem sagan er rituð,
er Gizurr galli fremstur höfðingi i Viðidal (f. 1269, d.
1370, 102 ára gamall). Þar sem allar likur eru til, að
sagan sje samin i Viðidal, má telja vist, að hún sje rituð
undir handarjaðri hans eða að hans hvötum. Þess má
geta, að um þetta leiti bir að Stóru-Borg Árni Bárðarson,
merkisbóndi og vel efnaður.1) Hann, eða Bárðr faðir
hans, gæti verið höfundar sögunnar, enn það getur lika
verið einhver annar oss alveg ókunnur maður, og tjáir
ekki að giska á það.
1) I. Fornbrs. II, 732.-733. bls. — brjef % 1340 — og III,
179.—180. bls. — próventubrjef Árna 2rÚ 1361.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>